Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Blaðsíða 29

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Blaðsíða 29
KYNJALYFIÐ. 75 bygðir geðjast mér betur að verklegri aðstoð samferðamanns míns er á reynir, en fögrum orðum hans. Af hinu síðarnefnda hef eg íengið nægilegt hjá þér, en verkleg hjálp hefði komið mér betur í viðureigninni við þennan Hamakó, sem í sínu vitfirringsæði lá við að ynni mér mein.« »það veit trúa mín,« svaraði Kenneth ridd- ari, »að eg kannast við það, að eg brá of seint við til þess að veita þér lið. Eg skil naumast í því sjálfur, en hin undarlega fram- koma og háttalag þessa manns, kom svo flatt upp á mig, að eg varð viðutan, og hafði ekki sinnu á að skakka leikinn þegar í stað. Enda kom mér þessi viðburður svo fyrir sjónir, sem hinn óguðlegi söngur þinn hefði sært fram fjandann sjálfan á meðal vor.« íFú munt vera sneinn að átta þig á hlut- unum, kristni riddari, og hefði þessi Hamakó verið dálitið tryltari en hann þó var, þá hefði förunautur þinn verið myrtur hér í óbyggð- unum við hlið þína, án þess að þú hefðir hræt legg né lið, þótt þú værið nær staddur með alvæpni. Slíkt hefði orðið þér til ævar- andi skammar.* »Satt að segja, Saraceni, ef eg á að segja sannleikann hreinskilnislega, þá hélt eg að þessi mjög svo kynlega vera væri djöfullinn sjálfur, og þar sem þú ert greinilega i ætt við hann, gat eg ekki vitað hvaða skyldmenna leyndarmál þið kynnuð að vera að tjá hvor öðrum meðan þið, að mér virtist í ástúðlegum faðmlögum, veltust þarna í sandinum.« »Spott þitt er ekkert svar, vinur Kenneth,« sagði emírinn, »því það ættir þú að vita, að þótt þessi ofbeldismaður hefði verið myrkra- höfðinginn sjálfur, var það eugu síður skylda þín að hjálpa förunaut þinum. Enn fremur vil eg eigi dylja þig þess, að sé nokkuð djöf- ullegt við þennan Hamakó, snertir það meira þína ætt en mína, þar sem hann er þessi und- arlegi einsetumaður, sem þú kvaðst þurfa að heimsækja.i »Hann!« hrópaði Kenneth, og horfði fast á þennan langa og magra mann. »Hann get- ur ómögulega verið hinn æruverði Theódórik.* »Spurðu hann sjálfan, ef þú trúir mér ekki,« sagði llderim, og varla hafði hann slept orðinu, þegar einsetumaðurinn staðfesti þetta sjálfur með því að hrópa: »Eg er Theódórik af Engaddi, krossins vinur, en svipa á alla djöfladýrkendur, burt með þá. — Niður með Múhameð, þann hund, og alla hans áhangendur.« Meðan hann í æsingu hrópaði þannig, tók hann undan geitstökunni allgildan járnflein sívalan og veifaði honum með sýnilegum fim- leik yfir höfði sér. »Parna sérðu þann helga mann,« sagði Saraceninn og hló í fyrsta skifti þann dag. Kenneth riddari hlustaði á hin frekjulegu orð hans og horfði frá sér numinn af undrun á lát- æði hans, en einsetumaðurinn veifaði járnkall- inum í allar áttir rétt í kringum riddarana og virtist það ekki varkárni hans að þakka heldur tilviljun einni, að hann lenti aldrei í höfði þeirra. Að síðustu gaf hann sýnishorn af afli sínu og styrkleik járnkallsins með því að rústmölva með honum stóran stein. »Petta er bandvitlaus rnaður,* sagði Ken- neth mjög áhyggjufullur. »En samt sem áður helgur maður,« sagði emírinn, og gaf með því til kynna, að hann hefði þá skoðun, sem þá var almenn í Austur- löndum, að vitskertir menn hafi af guði fengið sérstakar andlegar gáfur. »Vita skaltu, kristni maður, að þegar sjónin hverfur af öðru aug- anu, skerpist hún á hinu, og þegar önnur hönd mannsins er höggvin af eykst afl hinnar. Eins er það, þegar skilningur manns og dómgreind um almenna hluti sljófgast og ruglast, þá skerp- ist skilningur og hin innri sjón á ýmsum him- neskum og dulrænum efnum.« Hér varð llderim að hætta, því fjallabúinn tók nú að kalla í ofsalegum syngjandi róm: »Eg er Theódórik af Engaddi —eyðimerkurinnar bál og brandur — svipa allra vantrúaðra! Ljónið og Leópardinn skulu verða mér samferða, og leita að skjóli í holu minni, og eigi inun kiðið óttast klær þeirra. Eg er hið skínandi blys og lýsandi Ieiðarstjarna — Herrann miskuni mér!« (Framh.) 1Q.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.