Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Qupperneq 30

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Qupperneq 30
76 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. í VANDA STADDUR. Saga eftir Pex. Pegar við skreppum út að kvöldtíma svona við og við, til að heimsækja vini vora, segjum við ætíð við konuna okkar: Eg kem heim í síðasta lagi kl. 10. En ef við eigum enga konu, segjum við það bara við sjálfa okkur. En sannleikurinn er að klukkan er þetta 2, 3 eða jafnvel 4, þegar maður rekur nefið inn úr dyra- gættinni. ‘ Petta er nú reyndar ekki vel hugsað. Kon- an hlýtur að tapa áliti á manninum, að minsta kosti hvað orðheldnina snertir. Eigi maður aftur á móti enga konuna, þá verður síðari villan argari hinni fyrri, því þá fer það alveg með sjálfstraustið — og það hlýt- ur að vera það allra versta, sem komið getur fyrir. Reyndar er altaf hægt að finna afsakanir og segja að enginn hafi haft hugmynd um hvað orðið væri framorðið, þegar lagt var af stað heimleiðis. En konan er ófáanleg til að trúa því, þó maður krossbölvi sér upp á það, að það sé satt. Því miður eru konurnar þannig gerðar. Pað var einn morgun fyrir nokkrum árum að eg varð þess var, er eg vaknaði, að klukk- an var farin eð ganga 10. En til allrar ham- ingju var eg þá ekki kvæntur. Pegar eg var búinn að átta mig, mundi eg eftir því, að eg hafði verið í heimboði kvöldið áður hjá ókvæntum manni, auðvitað fastráðinn í því að vera komin heim aftur klukkan 10, því reglu- bundinn svefn er hverjum manni nauðsynlegur. En það hlýtur að hafa verið orðið framorðið, þegar eg kom heim, því annars hefði eg ekki sofið svona lengi. Pegar svona stóð á var eg ætíð vanur að lofa því með sjálfum mér, að þetta skyldi verða í síðasta sinn, sem eg fylgdi ekki áætlun. Og lét eg þá hnúana dansa vægð- arlaust á gagnaugunum á mér og þaut framúr rúminu. Hafði eg sömu aðferð við mig í þetta skifti. Um leið gaut eg aðeins hornauga til morgunkaffisins, sem var- orðið ískalt. það hafði verið komið með það án þess að leiða athygli mitt frá hinum ljúfa draumaheimi. Petta morgunkaffi var annars frá þeim sem mig dreymdi um, þó það væri framúrskarandi dauft og með þessum óútreiknanlega keim. í þetta sinn hafði eg ekki annað en lítilsháttar axlaypt- ing aflögu handa guðadrykknum. Herbergið, sem eg bjó í, og sem ekkju- frú nokkur leigði mér, var í Pestervoldgötu. Allir andbýlingar mínir voru aðeins eyðileg vígisbrekka og feiknastór mylnusteinn, sem lá í brekkunni. Að vísu voru stundum menn á ferli þar uppi í vígisgarðinum, en á morgnana sást þar aldrei nokkur hræða. Til frekari trygg- ingar dró eg samt niður gluggatjaldið — eg hafði ekki ráð á nema einum glugga — því um nóttina hafði eg ekki haft sinnu á því. Jafnskjótt og eg var búinn að draga tjaldið fyrir gluggann, var drepið hægt á dyrnar. Mikill fjandi nú kemur annaðhvort vinnu- konan eða ekkjufrúin. Pær ætla sjálfsagt að fara að gæía að hvort eg sé kominn út, og ætla þá að taka til í her- berginu. Mér datt í hug að þjóta aftur ofanundir, en sá jafnskjótt að eg gat ekki náð til rúmsins áður en komumaðurinn kæmi inn. Pað stóð fataskápur fast hjá mér og var hurð hans í hálfa gátt. Sem örskot þaut eg inn í skáp- inn og dró hurðina svo fast að sem eg gat. í sama bili kom vinnukonan inn í herberg- ið með sóp í hendi; eg gat virt hana mjög vel fyrir mér í gegnum rifurnar á skápnum. Jeg leit illu auga til sópins, því hann sýndi það, að stúlkunni var full alvara með að fram- kvæma verk sitt. Bara hún hefði skeinst út aftur, svo eg hefði getað yfirgefið þetta bráðabirgðahæli

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.