Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Síða 32

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Síða 32
78 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Eg lét nú tárin eiga sig en krækti í dauð- ans ósköpum öllum nöglunum í hurðina en hún lét undan. Guð hjálpi mér! — — Parna náði eg þó loksins tökum á henni. En hvað hjartað hægði á sér að slá. Allur Iíkami minn var eins og festur upp á þráð — ekki af kulda, heldur af sneipu. Pað batnaði þá, þegar frúin leit í áttina til skápsins. Hún hlaut að hafa heyrt marrið í hurðinni. Ef þær skyldu nú finna mig! »Hvaða hljóð var þetta?« sagði frúin og leit til stúlkunnar. »Hljóð?« át stúlkan eftir og lagði við hlustirnar eins og hún ætti von á að það heyrðist aftur. Hún hafði ekki heyrt neitt. »Pað var eins og það kæmi frá fataskápn- um,« tautaði frúin, »Æ! það hefir bara verið kötturinn úti á ganginum,* ansaði stúlkan og þótti auðsjáan- lega leiðinlegt að geta ekki samsint það sem frúin sagði. í sama bili rak frúin augun í skjalahrúgu, sem eg átti á borðinu og fór þegar að grúska í henni. Hljóðið, sem hún hafði heyrt, var auðsjáanlega ekki lengur í huga hennar. Fjandinn hafi úr henni rifrildið! Parna voru lánsmiðar mínir, óvönduð skuldheimtubréf og bréf viðvíkjandi mínum síðasta ástafundi, sem haldinn var í kvöldrökkri út á víðavangi. En frúnni hefur víst dottið í hug, að það væri víst engin fyrirmynd, að hnýsast í leyni- skjöl annara, þegar vinnukonan hennar var nær- stödd, því eg sá, að hún Iagði þau frá sér. Stúlkan var rétt að byrja að sópa gólfið, þegar frúin sagði henni að fara út og taka til í svefnherberginu. »Eg skal sjálf taka hérna til,« sagði hún um leið og hún tók við sópnum; en stúlkan fór út og rendi ámátlegu hornauga til skúffanna, sem hún hafði því miður ekki haft tíma til að raða bréfunum niður í eins vel og hún hefði viljað. En hurðin var ekki fyr komin aftur en frú- in senti sópnum og fór aftur að blaða í skjöl- unum. Eg stóð inni í skápnum og var alveg að verða frávita af gremju og þreytu og leiðind- um. Mér datt í hug að halla mér aftur á bak, en rak þá hnakkann í fatasnagana og var nærri búinn að stengja mig. Eg fór að hugsa um rannsóknarréttinn til forna á Spáni. Þar var notaður járnskápur en mikíu minni en þessi og að fnnanverðu þak- inn járngöddum — mig minnir hann héti »Járnjómfrúin«. Inni í skápnum voru svo hinir óbætanlegu syndarar lokaðir og urðu að þola þar kvalafullan dauða á þann hátt, að gaddarnir gegnstungu alla líkami þeirra, Var eg mikið betur staddur í þessum verustað? Var eg ekki kvalinn bæði á líkama og sál ? Átti eg að arga? Pað var orðið of seint; eg hefði átt að gera það undireins. Frúin gat vel staðið þarna hálfan daginn, hún átti ekki svo annríkt. Pað var alt eins. Frúin las með gaumgæfni öll skjölin. Og mér sýndist ekki betur en hún byrja aftur og aftur á hrúgunni. Hún hefur víst ætlað að kynna sér efni blaðanna til hlítar. Og þarna hímdi eg á nærklæðunum inni í skápnum í versta skapi marga stundarfjórð- unga. Ó, hamingjunni sé lof! þarna er hún að leggja frá sér blöðin. Frúin gekk frá skjölunum í röð og reglu og tók nú sópinn. En þá sá eg, að hún rak augun í vínflösku sem stóð í einu horninu. Eg hafði aldrei sjálfur verið gefinn fyrir vín, en það er alténd gaman að eiga sopa, til að gefa gestum sínum, og þessvegna átti eg ætíð eina eða tvær portvínsflöskur í herberg- inu. Frúin skotraði augunum í áttina til dyranna slepti aftur sópnum og læddist hljóðlega að flöskunni. Að vörmu spori stóð flaskan á hvolfi í munni. frúarinnar. Pegar hún hafði fengið sér góðan teig, tók

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.