Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Side 34

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1917, Side 34
80 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Óþarfur ótti. (Eftir C. Holdt herlækni. ) Regar keniur norður fyrir borgina Bord- eaux og inní dalinn, sem járnbrautin liðast eftir eins og silfurþráður, er fagurt um að litast og flestir verða hrifnir af náttúrufegurðinni, þar sem vínviðarhæðirnar blasa við milli yndis- legra skógarbelta. En uppi við hlíðarnar brosa við skrautlegar sumarhallir hér og þar, umgirtar svipfríðum lystigörðum. Hinir ríku kaupmenn borgarinnar eiga þess- ar hallir, mennirnir, sem grætt hafa miljónir á vínverzlun niður við höfnina sunnan við fljótið. Hinn göfugi og gestrisni danski yfirkonsúll, Kirsteiner, bjó þarna norðan við borgina, og hann bauð mér heim til sín í hvert skifli sem eg hafði nokkra hvíld við störf mín bak við orustuvöllinn. Rað var í aprílmánuði 1915, að eg í öðru sinni fékk tækifæri til þess að dvelja á hinu yndislega heimili hans nokkra daga. í einni sumarhöllinni í nágrenni víð kon- súlinn bjó fjölskyldan Camberton, og það var þar sem atburðir þeir gerðust, sem eg ætla nú að segja frá. • Ress skal eg þegar gefa, að nöfn- unum hef eg breytt á mönnum þeim, sem hér er sagt frá. Eg vil og þegar biðja lesendur mína að minnast þess.að hermálaráðherra Frakka og öll frakkneska stjórnin flutti til Bordeaux, þegar Parísarborg var í hættu stödd fyrir her Pjóðverja. En um nýársleytið fluttu allir ráð- herrarnir aftur til Parísar, því þá var hættan utn garð gengin og herlið Pjóðverja stöðvað, en hermálaráðherrann varð þó eftir aðallega sakir þess, að þar var léttara að bera sig sam- an við stjórn flotans, þar sem nokkur hluti flotans lá þar. Nú kemur maður til sögunnar úr foringja- Sveit frakkneska hersins, Hinrik de Montagne að nafni. Hann hafði fyrir nokkrum árum ver- ið kapteinn í hersveit Frakka í Asíu. Paðan hafði hann komið fyrir 5 árum, þótti eigi heils- unnar vegna fær um að vera þar lengur að sinni, og tók hann þá embætti sem aðstoðar- maður í hermálaráðaneytinu. Par sýndi hann brátt svo mikinn dugnað og skarpskygni, að hann eigi einasta hlaut majórs nafnbót, heldur fanst hermálaráðherranum hann ómissandi fyrir sig, þegar stríðið skall yfir. Einu ári eftir heim- komu sína giftist Montagne yngisfrú nokkurri, Olivette Orlande að nafni. Hún var nokkrum árum yngri en hann. Hjónaband þeirra hafði verið mjög ástúðlegt og hamingjusamt, einkum eftir að maddaman hafði eignast Ijómandi fag- urt sveinbarn. En svo skall yfir ófriðurinn mikli, og honum fylgdi áhyggjur og sorgir á mörgum sviðum. Frakkneski herinn megnaði ekki í fyrstu að veita viðnám hinni aflmiklu heröldu Pjóðverja, og varð að hörfa undan suður eftir svo langt, að Parísarborg, hjarta Frakklands, var í voða, svo stjórnin og þá fyrst og fremst hermálaráð- herrann flutti til Bordeaux í byrjun september mánaðar. Pá var það, að maddama Olivette í fyrsta skifti komst í kynni við þá sorg, sem giftum konum er beiskust, óttann um að önn- ur kona mundi taka frá henni manninn hennar, sem hún elskaði meira en sitt eigið líf. Hún fann til óttans og skelfingarinnar við þann grun, að hún að líkindum mundi bíða ósigur í bar- áttunni um hann við þessa fögru og gáfuðu konu, sem hún var sannfærð um að mundi gera sitt ýtrasta til að þess að ræna honum frá sér. Þessi óttalega kona var sagt að væri frá Ameríku, og var nefnd Evelyn Seldom. Hún virtist vera mesta atgerfiskona. Þrátt fyrir þá miklu óbeit, sem maddama Olivette hafði á henni, varð hún þó að kannast við, að þessi kona, með hljómfagra röddu, skarpa dómgreind,

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.