Nýjar kvöldvökur - 01.10.1930, Page 10

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1930, Page 10
152 NÝJAR KVÖLDVÖKUR — Eg veit það ekki. — Guð svifti mig gáfunni — e<?a ef til vill kól hún burtu eins og annar gróður í ísárunum og á meðan eg beið vorsins —. Eg hefi sagt, að það ávalt er eitthvað, sem er að deyja í okkur — það deyr í okkur öllum. Vorið hans Guðmanns gamla er löngu liðið. Þegar karlinn fær svolítinn sopa hlýnar honum og sólargeislarnir skína rétt sem snöggvast á sálina. En það er ekkert annað en endurminningar. Guð er góður. Bráðum mun hann gefa mér ann- að vor, og þá fæ eg skáldskapargáfuna aftur. Honum til lofs og dýrðar — eg hefði átt að nota hana til þess, á meðan eg hafði hana — líkt eins og Hallgrímur sálugi Pétursson gerði —. Þorlákur hafði ekki búist við, að Guð- mann gamli mundi snúa samtalinu í þessa átt. Það kom svo óvænt, að honum fat- aðist. Hann fór einhvernveginn hjá sér og spurði einskis framar. Þeir lágu þegjandi hlið við hlið, þar til morgnaði. ---------Um morguninn kom bóndinn, sem átti hlöðuna inn til þeirra og bað þá ganga í bæinn og fá sér einhverja hress- ingu, áður en þeir legðu upp aftur. — Nokkrum klukkustundum seinna voru þeir félagar komnir norður á heiði. Veður var hið fegursta, logn og glaðasólskin. Snjórinn viknaði meira og meira í sól- bráðinni og færðin versnaði að sama skapi eftir því sem á daginn leið. Þeir urðu að ganga mest alla leiðina og láta; reiðhestana troða braut fyrir áburðar- klárana. Þeim sóttist því seint leiðin. Þegar þeir voru komnir norður á há- heiði þar sem sæluhúskofinn stendur, áðu þeir, tóku ofan af hestunum og gáfu þeim svolitla tuggu. Sjálfir fóru þeir inn í kof- ann til þess að fá sér bita. Áður en þeir fóru inn, stóð Guðmann' lengi og skygndist til veðurs. Hlákuskýin voru óðum að draga á loft í suðurátt. Hann mælti: — Nú, piltar, kemur hann — sunnan- þeyrinn — í hælana á okkur. Og hann rekur bölvaðan hafísinn alveg norður í hafsauga. — Svo kemur blessað sumarið með nýtt líf... Og þá gleymum við... Við erum fljótir að gleyma íslendingar — það er blessun fyrir okkur og bölvun, hvor- tveggja í einu. — 0, jæja. Svo fór hann á undan félögum sínum inn í kofann og byrjaði að leysa frá mal- pokanum. (Saga þessi hefir áður birtst í ný-norskri þýð- ingu í »Nidaros Ungdomsblad«, 1930). Símon Dal. Saga eftir Anthony Hope. XII. KAPITULI. Hertoginn verður að lítillækka sig. Það var áreiðanlega skrítinn maður þessi M. de Perrencourt. Það var ekki nóg fyrir hann að koma um miðja nótt, og mæta M. Colbert á meðan sérstakur (Framh.). maður með konunglegar fyrirskipanir stóð á verði, svo að enginn óviðkomandi gæti séð þá. (Darrell gerði sér alveg sér- staka ánægju af að benda mér á stjörn- una á brjósti Colberts næsta morgun). — Hann virtist í öllu taka myrkrið fram yf- ir dagsbirtuna og sást aldrei á daginn

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.