Nýjar kvöldvökur - 01.10.1930, Síða 12

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1930, Síða 12
154 NÝJAR KVÖLDVÖKUR mér þætti nokkuð gaman að heyra kon- unginn ákalla hina heilögu mey?« »Fyrir Guðs sakir, talið þér ekki svona hátt!« heyrði eg Carford segja. »Nú, hvers- vegna? Er hann ekki að ákalla dýrðling- ana — hann og katólski presturinn drotn- ingarinnar — og franski...?« »Þey, þey, sir!« »Og okkar góði M. de Perrencourt þá!« Hann hló illgirnislega þegar hann nefndi þetta nafn. Eg var búinn að heyra meira, en mér hafði verið ætlað, og meira en nóg til þess að hjálpa skilningi mínum. — En eg varð á einhvern hátt að gefa nærveru mína til kynna. Ef Monmouth hefði verið einsamall, þá hefði eg gengið beint til hans. En eg vildi ekki láta Carford gruna, að eg hefði heyrt til þeirra. Eg sat alveg grafkyr í nokkur augnablik, svo fór eg að umla og geyspa eins og eg vaknaði upp af svefni, stóð á fætur og lézt hrökkva saman eins og mér yrði hverft við, þegar eg sá hertogann. »Hvað — Símon«, hrópaði hann — »hvað gerið þér hérna?« »Eg hélt að yð- ar hágöfgi væri í málstofu konungsins«, svaraði eg. »En þér vissuð, að eg fór það- an fyrir fleiri klukkutímum síðan«, sagði hann. »Þegar eg misti sjónar á yðar há- göfgi, þá hélt eg að þér hefðuð farið þangað aftur, og á meðan eg beið eftir yður, hefi eg sofnað«. — Hertoginn tók þessa útskýringu góða og gilda. Carford lagði ekkert til málanna. »Við höfum annað okkur til skemtunar en að sitja á ráðstefnum í kveld«, mælti Monmouth og hló nú aftur. — »Farið þér niður í forsal- inn og bíðið mín þar, Símon. Eg og Car- ford lávarður ætlum rétt sem snöggvast að heilsa upp á hirðmeyjar hertogaynj- unnar«. Eg sá að hann var talsvert ölv- aður; Carford var líka kendur, en hann varð aðeins þögulli og fúllyndari við vín. Mér fanst að hvorki ástand þeirra né tíminn vera vel valið til slíkrar heimsókn- ar, sem heitoginn talaði um; en eg gat ekkert að gert, og sá minn kost vænstan að hlýða og fara niður. Þar settist eg á tröppu undir einum skotglugganna. Stór stóll, sem stóð fyrir framan mig, skýldi mér alveg, svo eg sást ekki þótt einhver kæmi inn. Þannig beið eg í nokkrar mín- útur, þá heyrði eg háreysti og hlátur uppi, fótatak á tröppunum og hvítklædd stúlka kom hlaupandi þvert yfir gólfið. Eg þekti strax, að það var Barbara Quinton. Monmouth var rétt á hælunum á henni og bað hana með hjartnæmum orðum að vera ekki svo miskunnarlaus að flýja hann. — En hvar var Carford? — Eg gat einungis getið mér til, að hann væri svo nærgætinn að láta hvergi sjá sig, þegar hertoginn óskaði að tala við konu þá, sem hann ætlaði að giftast sjálfur! Eftir minni skoðun mætti rita stórar bækur um það, hvort menn undir nokkr- um kringumstæðum megi standa á hleri — en eins og nú var komið, þá sat eg í fylgsni mínu og hlustaði án þess að gera mér neina samvizku af því. Annað mál er hversu lengi eg hefði getað setið þannig og haft vald yfir sjálfum mér, því her- toginn virtist vera í þeim ham, að hann mundi ekki hafa mikið taumhald á sjálf- um sér. — Fyrst reyndi Barbara að verja sig með gamni, auðsjáanlega treysti hún því, að hann mundi sýna henni fulla kurteisi. En hann varð áleitnari, og eg heyrði að það var ekki laust við að ótti væri í rödd hennar, þegar hún bað hann leyfis til að mega fara upp aftur til her- togaynj unnar, sem mundi sakna hennar. »Nei, yndislega ungfrú, eg vil ekki lofa yður að fara — eða réttara, eg get ekki slept yður!« sagði hann. »Það er alveg satt, yðar tign, eg verð að fara«, mælti hún. »Eg ætla að kalla á Carford lávarð og láta hann biðja yður leyfis fyrir mig til að fara«. Hann hló dátt að þeirri hug- á

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.