Nýjar kvöldvökur - 01.10.1930, Síða 34

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1930, Síða 34
176 NÝJAR KVÖLDVÖKUR og tæki til að stunda vinnu sína eða hand- verk. Drottinn Jesús kennir í guðspjöllunum að varast alla ágirnd og áhyggjur fyrir líkamlegum þörfum. Þessvegna má eng- inn af bræðrunum taka við peningum fyr- ir vinnu sína, hvorki til matar, fatnaðar eða bóka, nema að einhver bræðranna sé sjúkur og þurfi hjálpar við. Við eigum ekki að virða gullið meira en grjótið. Ef við finnum peninga á förnum vegi, eigum við ekki að gefa þeim meiri gaum en duftinu sem við göngum á. Þó mega bræð- urnir safna fé handa líkþráum mönnum. Allir bræður eiga að fylgja dæmi Drott- ins Jesú í auðmýkt og fátækt og minnast þess að sá sem hefir fæði og föt hefir allt sem hann þarf. Þeir eiga að una sér bezt meðal hinna fátæku og smáðu, sjúkra og líkþrárra. Það gjörði Jesús; hann og læri- sveinar hans lifðu af ölmusum. Vilji menn ekki gefa bræðrunum neitt, en svívirði þá í orðum og viðtökum, þá eiga þeir að þakka Guði, því það mega bræðurnir vita, að svívirðingin tilreiknast ekki þeim sem fyrir henni verður, heldur þeim sem fremur hana«. Eftir þessum reglum lifðu bræðurnir. Stundum unnu þeir hjá bændum í ná- grenninu, en oftast á holdsveikraspítöl- unum og aldrei tóku þeir önnur laun en brauðbita. Oft var þó lítið um vinnu og stundum alls ekkert að fá þó gengið væri út og betlað. Þá voru stundum daprir dagar í skúrnum. í rigningum og hríðum lak og snjóaði inn á þá, gólfið varð einn forar- pollur, þeir sjálfir klæðlitlir og oft hungr- aðir og lítil matarvon, ekkert til að hita upp með og ekki einu sinni bók til að líta í. Hætt er við að sumum, sem mundu tvenna tímana, allsnægtir og lífsþægindi, hafi þá stundum dottið í hug, hvort þetta væri ekki allt heimska og glapræði, og bezt væri að snúa aftur til síns fyrra lífs. En hvert var að snúa? Þeir höfðu gefið allt. Vafalaust hefir kjarkurinn oft verið nærri brostinn, en hann brast ekki. Að- eins einn er sagt að hafi horfið frá þeim á þessum reynslutíma. En bráðlega snerist almenningsálitið aftur. Þolgæði bræðranna í öllum þreng- ingum og svo strang-siðferðilegt líf þeirra, að ekki varð að fundið, vakti bæði undrun og álit. Þeir sem á næturþeli gengu hjá skúrnum, heyrðu þá biðjast fyrir. Menn vissu að þeir betluðu ekki af því þeir nentu ekki að vinna, því þeir unnu allstaðar sem þeir fengu eitthvað að gera, jafnvel þó þeim væri engu launað. Allir nauðleitarmenn, sjúkir og fátækir, áttu hjá þeim athvarf og þrátt fyrir fá- tækt sína, áttu þeir altaf eitthvað að miðla öðrum. Dæmi voru jafnvel til, að þeir gáfu betlurum hetturnar af kuflum sínum eða rifu af þeim ermarnar og gáfu klæðlausum. Peninga kærðu þeir sig ekki um. Þannig lagði einu sinni maður tals- verða fjárupphæð á altari kapellunnar í Portiuncula, sem gjöf handa þeim, en fann peningana skönimu síðar á mykju- haug þar nálægt. Einkum vakti það almenna athygli hve sambúð bi'æðranna var innileg. Einusinni réðist geðveikur maður á tvo bræður sem voru á gangi, og fór að kasta í þá grjóti. Reyndu bræðurnir hvor um sig að verja hinn, en skeyttu engu þó þeir sjálfir yrðu fyrir steinunum. Sátt og samlyndi ein- kendi líf þeirra, og yrði einhverjum á að gjöra á hluta annars, bætti hann það eft- ir föngum. í samræðum forðuðust þeir öll ljót orð og ósiðferðilegt skraf. Mættu þeir konu á förnum vegi, horfðu þeir til jarð- ar. Eins og áður er getið um, hafði Frans gefið út reglur fyrir þá bræður, sem hann krafðist að þeir fylgdu. Nú langaði hann til þess að fara til Rómaborgar og fá þær staðfestar af páfa. Þess var að vísu ekki

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.