Nýjar kvöldvökur - 01.10.1930, Síða 38

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1930, Síða 38
180 NÝJAR KVÖLDVÖKUR bezta af mómýrunum og það mesta af öllu því litla akurlendi, sem til var í sókninni. Hann gat því haldið margar kýr og fleiri en eina uxahjörð, sem gengu á beit á engjunum meðfram ánni. Bænd- urnir þar á móti áttu lítið annað en nokk- ur mögur svín og fáeinar kindur sér til lífsviðurværis. Þótt presturinn væri fátækur, þá var þó djákninn enn fátækari. — Presturinn átti þó vagn til að aka í, þegar hann fór til messu á annexíu-kirkjunni, en djákn- inn hefði altaf orðið að fara gangandi, ef prestur hefði ekki aumkast yfir hann og lofað honum að sitja hjá sér í vagninum. Af þessu fékk hann gott orð, og það varð héraðsfleygt, hve vel þeim kæmi saman presti og djákna. Einhverju sinni bar svo við, er þeir voru á leið til kirkju, að þeir óku fram hjá engjum herramannsins og sáu uxa- flokk mikinn, sem gekk þar á beit, þetta var síðla sumars og voru uxarnir orðnir all feitír. Prestur bendir þá með svipu- skaftinu á einn uxa gamlan, hið mesta metfé, og segir í gamni: »Það væri ekki alveg ónýtt fyrir okkur fátæklingana, að eiga hann þennan. Það munaði um að leggja hann til búsins, jafnvel þó við ættum að skifta honum á milli okkar«. »Það segir þú satt, síra Jón minn«, svaraði djákninn, »en ekki ætti það nú að vera ofverkið okkar að stela einum uxa, ef okkur langaði mikið til að eignast hann«. »Það borgaði sig nú heldur illa fyrir okkur«, mælti prestur hlægjandi, »og fara svo á Brimarhólm fyrir vikið«. »Þangað færum við nú aldrei«, svaraði djákninn, »vegna þess að engum lifandi manni gæti nokkurntíma dottið í hug að gruna okkur um slíkt athæfi«. Prestur hló dátt að þessu spaugi djákn- ans. Héldu þeir nú leiðar sinnar; embætt- uðu þeir í kirkjunni eins og þeir voru vanir og bar ekkert til tíðinda. En um kveldið, þegar þeir voru á heim- leið og óku aftur framhjá engjum herra- mannsins, mættu þeir sama uxaflokknum, sem þeir höfðu séð um daginn. Uxinn mikli, sem þeir höfðu rætt um, lá þvert yfir götuna og nenti ekki að standa upp. Prestur varð að stöðva vagninn. Það var orðið nokkuð dimt af nótt en samt þekti prestur þegar uxann. »Gaman væri nú að eiga þessa skepnu!« segir prestur þá aftur. »Við getum eign- ast hann, ef við viljum«, mælti djákninn. »Nú er dimt og enginn getur séð til okk- ar. Á morgun, þegar hans verður. saknað, munu menn halda, að hann hafi dottið of- an í mógröf. Og ef einhver grunur kæmi á, um að honum hefði verið stolið, mundi þó engum detta í hug, að við hefðum gert það. — Okkur er því alveg óhætt að taka uxa-skömmina heim með okkur, síra Jón minn. Ekki munar herramanninn mikið um, þó hann missi einn uxa, hann á nógu marga samt. En okkur munaði heldur en ekki um að leggja hann í búið!« Síra Jón litaðist um og hleraði í allar áttir, og er hann var sannfærður um, að enginn sæi til þeirra, stökk hann niður af vagninum, tók reipi, sem hann jafnan hafði með sér á ferðalögum, og sagðí djáknanum að bregða múl á uxann. Djákninn lét ekki segja sér það tvisvar, og varð honum lítið fyrir að ná uxanum, sem var svo þungur á sér, að hann naum- ast nenti að standa upp. Bundu þeir hann nú við vagninn og óku heim til prests, en höguðu svo ferðum sínum, að allir voi'U háttaðir, þegar þeir komu. Þeir fóru þegar með uxann í úthýsi og slátruðu honum þar um nóttina; skiftu þeir öllu jafnt og bróðurlega á milli sín og varð ekki ágreiningur urn neitt, þang- að til ekkert var eftir nema húðin. »Við skulum skera hana í sundur í

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.