Nýjar kvöldvökur - 01.10.1930, Blaðsíða 39

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1930, Blaðsíða 39
STOLNI UXINN 181 miðju, svo að hver fái sinn part«, segir jprestur. En djákninn var ekki á því, leiddi hann presti fyrir sjónir, að með því móti stórskemdu þeir skinnið. »Hvernig eigum við þá að fara að?« segir prestur. »Við skulum togast á um húðarskömm- ina«, mælti djákni, »og sá hafi hana, sem sterkari er«. Prestur lætur sér þetta vel líka. Þeir höfðu flegið uxann þannig, að horn og hali fylgdu húðinni, og flýtti prestur sér .að grípa hornin. Djákninn varð þá að láta sér nægja að halda í halann; og þó aðstöðumunur væri, þá svifti hann svo fast, að við sjálft á að prestur biði lægra hlut. Hörfa þeir nú utar eftir gólfinu og kemst djákni út fyrir dyrnar með húðina, en prestur lafir í hornunum. Sér hann að svo búið má eigi standa; hamast hann þá, spyrnir í þröskuldinn og togar af alefli, en halinn skrapp úr höndum djákna, og féll hann við það öfugur og aftur á bak. Stóð hann skjótt upp aftur og varð að orði: »Jæja, húðin er þá þín, blessaður öðl- ingurinn, enda hefir þú mikið til unnið«. Og varð þeim þetta ekki að sundur- þykkju. Tíðrætt varð mönnum í sókninni um hvarf uxans, en það fór eins og djákni hafði sagt, að engum datt í hug, að þeir prestur væru valdir að hvarfinu, og fyrnt- ist smám saman yfir söguna. Þeir prest- ur og djákni urðu hvor öðrum því hjart- fólgnari, sem árin liðu, fóru þeir aldrei neitt svo, að þeir væru ekki báðir saman, og hvorugum þótti ráð ráðið, nema hinn væri til kvaddur. En því veittu menn eft- irtekt, að þeir upp frá þessu tóku heldur að efnast, datt þó engum í hug að setja það í samband við, þó eitthvað hyrfi, sér- ílagi af fjármunum herramannsins. Eftir nokkur ár voru þeir orðnir vel efnaðir nienn, en þeir voru engu miður látnir fyrir því, og einkum var presti enn sem fyr viðbrugðið sem afbragðs kennimanni, sannkristnum og fyrirmynd sóknarbarna sinna í hugarfari og líferni. —- Liðu nú svo stundir fram, að ekkert bar til tíð- inda, fyr en eitt sinn er biskupinn kom í visitasíu-ferð til prests. Var honum fork- unnarvel tekið, og um kveldið sló prestur upp góðri veizlu á prestssetrinu og bauð þangað bændum úr sóknum sínum. Var þar glaumur og gleði, og lofuðu allir rausn og mannkosti síra Jóns einum rómi. Djákninn var einnig viðstaddur og fékk sinn hluta af lofinu. Einkum lofuðu menn ástríki það, er ætti sér stað milli' prests og djákna. Yfir borðum kvaddi biskup sér hljóðs og tók að halda ræðu. Talaði hann einkum um, hversu það gleddi sig, að hér væri slík eindrægni innan safnaðarins, og vildi hann þakka það hinu góða eftirdæmi sem prestur og djákni gæfu — enginn vissi til þess, að þeim nokkurntíma hefði orðið sundurorða. Þá gall djákni við, þar sem hann sat á aðra hönd biskupi: »Nei, sundurorða hefir okkur síra Jóni mínum sjaldan orðið; en einu sinni reiddist eg nú fjandi miklð við hann samt«. »Hvenær var það?« spyr biskup for- viða. »Nú, það var kveldið góða, þegar við stálum uxanum herramannsins, og blessaður presturinn minn reif af mér húðina«. f sama bili svelgdist presti all hrapal- lega á og fékk svo mikla hóstakviðu, að að hann varð að þjóta frá borðinu og út. »Hvað, stáluð þið uxa?« spurði biskupinn og vissi ekkert hvaðan á sig stóð veðrið. »Já, bíðið þér nú við, yðar velæruverð- ugheit«, svaraði djákninn, »og leyfið mér fyrst að fara út að vitja um hann síra Jón minn. Eg held honum hafi orðið ilt, blessuðum öðlingnum, og hverjum ætti að standa nær að hjálpa honum heldur en mér?« Að svo mæltu fór djákni út á eftir presti. En biskup sat eftir og allir veizlu-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.