Ný dagsbrún - 01.01.1904, Síða 65
59
Norður og niður.
Eítlr M. J. Skaftason.
Fyrirlestur frá liinu 2. únftariska kyrkjuþingi.
------:o:—1—
Jeg ætlaði í fyrstu að nefna þenna fyrirlestur „Hvert
stefnir?“, en þegar jeg níi minnist þcss, að hr. Einar O-
lafsson hefir áður ílutt fyrirlestur mcð þcirri fyrirsögn, þá
ætla jeg að breyta til og hafa fyrirsiignina ,,Norður og
niður“.
* *
* « 4Í-
Það liggur við að það sje hftlfgjörður gcigur f mjer að
leggja út í þctta mál, þvf að mjer finnst svo fátt hafa vcr-
ið urn það sagt incðal Islendinga, og f rauninni ekki neitt
cftir þeim skilningi, sem jeg legg f þctta mál. En svo að
menn misskilji mig ckki þegar f byrjun, þá ætla jeg að
rcynaaðskýra dálftið betur hvað jeg á við, því að það má
tala um svo ótalmargar stefnur hjá fslendingum eins og
öðrum. Það má tala um bókmenntalegar stefnur, p<5litfsk-
ar stefnur, kyrkjulegar stefnur; um rcalista, fdealista;
um sósfalista, líbcrala, konservatfva; um trínftara, únf-
tara, agnostíka ; en jeg ætla eiginlega ekki að tala sjer-
staklega um neina þessa stefnu. Bókmenntir Islendinga
lijcr vestan hafs hafa svo lftið gildi, að tæplega er gjör-
andi nokkurt veður úr þvf og hvaða stefnu þær hafa, ja,
það má hamingjan yita, jeg leiði minn hest frá því, og jeg
hcld, að ef að menn færu að spyrja einhvern skáldsögu-
höfundinn íslenzka hjcr vestan hafs að þvf, hvaða stcfnu
hann hefði, þá væri vafasamt að hann gæti svarað því,
þó að frá því sje vitaskuld heiðarlegar undantekningar.
Trúarlcgu og pólitísku stcfnurnar þckkjum vjer allir,