Ný dagsbrún - 01.01.1904, Page 68

Ný dagsbrún - 01.01.1904, Page 68
62 NÝ DAGSBRTÍN. rjettarins, hins allra-kristilegasta drtmstóls, sem nokkurn tfma hefir settur verið til að frelsa sálirnar og vfðfrœgja dýrðina skaparans og auka og efla hans'ríki og veldi, þeg- ar menn undan þumalskrúfunum, undan spænsku stígvjel- unum, eða úr hinu logandi báli þúsundum saman hófu neyðarvein sfn og angistaróp upp til himnanna foður. Þær hafa vcrið breytilegar á hverri óld þessar liug- myndir, og þær hafa verið mismunandi hjá hverjum þjóð- flokki. Lftum til Barthólómeusnœturinnar á Frakklandi, 1572, þegar Katrfn af Medicf Ijet myrða Frakka þúsund- um saman. Allt fram á þenna dag eru þessar hugmyndir, liinar siðferðislegu, harla ólfkar hjá þjóðunum, þar sem t.d. sumar Eskimóaþjóðir bera cnn þáútbðrn, skilja við veika, aldraða foreldra sína til að láta þá dcyja út af hjátpar- lausa, o. s. frv. Því er cins varið með tilfinninguna fyrir hinu fagra, eins og fyrir hinu góða og rjcttláta. Svertinginn hefir allt aðra liugmynd um líkamlega fegurð, cn hinn hvíti maður. Svartir menn hugsa sjer guð svártan, og hafi þeir lítið citt heyrt um Krist, þá hugsa þeir sjer hann svartan, og eins er það mcð sumar aðrar hugmyndir þeirra, að þær cru frábrugðnar hugmyndum hvítra manna. Heimsspekingarnir gómlu slóu fóstum vissum grund- vallarhugmyndum rjettlætisins og fegurðarinnar, eins og þeir Zóró“aster, Confúcíus, Búddha, Sókrates, Plató og hinir grfsku heimspekingaflokkar, ogcngum lifandi manni, sem nokkuð þekkir til sógu mannkynsins, kemurtil hugar, að neita þvf, að hugmjmdir þessar hafi haft ákaflcga mikil áhrif á þjóðirnar ; þær hafa leitt þjóðirnar fram til siðfág- unar og menningar, og enn þann dag f dag eru milljónir manna, sem telja siðalærdóma þessara hinna gfimlu spek- inga hið helgasta og háleitasta, sem heimurinn nokkru sinni geti eignast.

x

Ný dagsbrún

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný dagsbrún
https://timarit.is/publication/512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.