Nýjar kvöldvökur - 01.01.1955, Side 10

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1955, Side 10
2 DAVÍÐ SEXTUGUR N. Kv. lauk, kom út ljóðabók, sem bar heitið Svart- ar fjaðrir. Höfundur hennar, Davíð Stef- ánsson frá Fagraskógi, var þá aðeins 24 ára að aldri, en var þá þegar orðinn kunnur ljóðavinum af kvæðum, sem birzt höfðu eft- ir hann í tímaritum. Fyrsta kvæði bókarinn- ar, „Mamma ætlar að sofna“, hafði hirzt þrem árum áður í Iðunni, fyrst allra kvæða skáldsins, og vakið óskipta athygli vökulla augna og þunnra eyrna. Þar sté fram skáld, er sannaði með frumburði þessum, að hann hafði þegar öðlazt næma formvísi, snillitök á strengi ljóðagígjunnar, þótt aldursárin væru aðeins liðlega 20. Kvæðið er í ætt við þjóðkvæðin gömlu, dansakvæðin, að sniði og yfirbragði, hátturinn lipur og léttur, lát- laus og hljóðlegur, án skrauts eða skrúðs, hæfir því efni kvæðisins, svo að ekki hefði á betra verið kosið. Barnið, sögumaður, bið- ur systur sína að vera hljóða í rökkurkvrrð- inni, svo að móðirin fái notið værðar og at- hvarfs í draumheimi í ljósaskiptunum. Létt- stígur hljóðleikur hvílir yfir kvæði þessu, svo að vér drögum andann ósjálfrátt hljóð- lega við lestur þess til þess að vekja ekki hina þreyttu móður. Kjarninn undir hjúpi formsins er einnig lostætur. Grunur hefir kveikzt í huga barnsins, sem fátt veit af sjálfs reynd um harmslungið mannlíf, um sorgina og þrána, sem hinir fullorðnu þurfa að þola, ýmist í vonlítilli baráttu raunheiins eða á vonlausum flótta til draumheima. Kvæðið er vammlaust listaverk, sem hver ljóðsnillingur væri fullsæmdur af, ber eng- in merki reynsluskorts frumvaxta unglings, sem þar flutti þjóð sinni frumsmíð sína. Davíð Stefánsson fæddist að Fagraskógi við Eyjafjörð fyrir réttum 60 árum. Faðir hans, Stefán alþm. Stefánsson, og föður- frændur voru í tölu kjarnmikilla góðbænda, en móðir hans, Ragnheiður Davíðsdóttir, héraðskunn gáfu- og gerðarkona. Hún var systir hins gáfaða, en skammlífa náttúru- fræðings og þjóðfræðasafnara Olafs Dav- íðssonar, en Jón Árnason þjóðsagnasafnari og velgerðamaður íslenzkrar tungu var ömmubróðir þeirra systkina. Þetta er sá kjörskógur, sem hinn „mæri mjötviður“, skáldmeiðurinn Davíð Stefánsson, er sprott- inn í. En þessu næst skulum við stuttlega skyggnast til veðurs á þeim dögum, er hann var að meitlast og mótast. Eins og áður var getið, hafði heimsstyrjöld geisað árin fyrir útkomu Svartra fjaðra. Slíkum sortaskýjum á himni tímans fylgir jafnan stormasúgur í lífi þjóða og hugum einstaklinga. Fyrir þessa stórstyrjöld hafði ríkt langt friðar- tímabil. Menn voru farnir að öðlast trú á bjarta framtíð mannkynsins, haldgæði frið- ar og velgengni þjóðanna. Stríðið kollvarp- aði þessum vonum, menn fylltust ugg og kvíða, leituðu einhvers nýs í trú og tján- ingu, þótt fáum væri, ef til vi'll, ljóst, hvers þeir leituðu eða livar þess væri að leita. Sumir leituðu nýrra forma í stjórn og skipu- lagi mannlegs félags. Fornar dygðir voru látnar fyrir róða, hinar fornu töflur Móse- lögmáls sættu allmiklum efasemdum. Skáld- in snúast frá raunsæi til rómantíkur, verða innhverf, lýsa tilfinningum, úthella hjarta sínu, sem venjulega er annaðhvort fullt af taumlausri gleði, beiskum söknuði, logandi þrá eða þrúgandi sorg. Þrá og þjáning verða jafnvel aðalatriði, draumurinn dýrari reyndinni, sorgin verður sæla, kvölin gleði, einmanaleikinn fögnuður. Helzta yrkisefnið og ljóðkveikjan verður ástin, ástin, sem er heitust og sælust í meinum, er dæmd til að deyja, en lifa þó, hefir söknuðinn að miði r og óumflýjanlegri niðurstöðu. Astin vegna ástarinnar, þráin þrárinnar vegna. Þján- ingin varð hjá sumum skáldum takmark x sjálfri sér, lífsnautn, fróun, sæla. Oss fljúga

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.