Nýjar kvöldvökur - 01.01.1955, Qupperneq 20

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1955, Qupperneq 20
12 S J ÓNARV OTTUR N.Kv. ekki eins og ég sagði þér? Þú hefir svikist um að setja nóg í glasið hans.“ „Eg sveikst ekkert um það. En það hreif ekki á hann. Hann lilýtur að hafa tekið eftir því.“ „Komdu,“ sagði hann. Þau gengu íil dyranna. „Hann gerir lögreglunni aðvart um leið og hann rís úr rotinu.“ Allt í einu krækti maðurinn á gólfinu um fætur hins, skellti honum kylliflötum og tókst að komast ofan á hann. Og nú hófst viðureign upp á líf og dauða. Það duldist ekki, að þeirn, sem fyrir rán- inu hafði orðið, veittist betur fyrst í stað. Honum tókst að halda hinum undir sér og lét kné fylgja kviði, greiddi honum hvert liöggið af öðru á höfuðið. Það gat ekki oltið á nema fáeinum sekúntum, að hann rotaði hann, hugsaði Buddy. Árásarmaðurinn lá á gólfinu með útrétta arma og gat ekki lengur kreppt hnefana eða veitt viðnám. En konan æddi á meðan um herbergið og leitaði að einhverju, sem hún gæti notað félaga sínum til bjargar. Allt í einu reif hún upp skápskúffu og tók upp úr henni einhvern hlut, sem gljáði á við ljósið. Fyrst í stað gat Buddy ekki séð hvaða hlutur þetta var, því að konan flýtti sér svo mikið. Hún stakk hlutnum í útrétta hendi þess, sem undir var. En andartaki síðar var honum veifað yfir höfðum beggja, og þá var enginn vandi að sjá hvaða hlutur þetta var. Það var stutt- ur, blikandi hnífur. Augun ætluðu hókstaf- lega út úr augnatóftunum á Buddy, svo skelfingu lostinn varð hann. Maðurinn reiddi hnífinn til lags og keyrði hann á kaf í hak mótstöðumannsins upp að skafti. Buddy gat ekki lengur séð neitt af blaðinu. Fangabrögðunum lauk á sömu stundu, en hnífurinn hélt áfram dauðadans sínum um líkama mannsins. Nú lágu báðir mennirnir kyrrir. Annar þeirra virtist eiga bágt með að ná andanum, svo móður var hann, en hinn var hættur að anda. Hann hreyfðist ekki lengur. Það var líkast því, að liann minnkaði stöðugt. Að síðustu hylti vegandinn honum ofan af sér og stóð á fætur. Hann strauk sér um vangann. Svo stóðu þau hæði grafkyrr, kon- an og maðurinn, og störðu á þann, sem á gólfinu lá. „Er hann dauður?“ heyrði Buddy, að konan spurði. „Það get ég séð fljótlega, bíddu.“ Maðurinn kraup á kné og þreifaði um hjartastað mótstöðumannsins. Hann hrifs- aði til sín hnífinn og reis aftur á fætur. Hann*leit á konuna og hristi höfuðið. „Guð hjálpi okkur!“ stundi konan skelfd. „Yið höfum drepið hann! Hvað eigurn við að gera, Jói?“ Hún talaði ekki hátt, en í þeirri dauða- kyrrð, sem ríkti í herberginu, gat Buddy greint hvert orð. Maðurinn þreif harkalega í handlegg hennar. „0, stilltu þig bara! Það er daglegt brauð, að maður sé drepinn, án þess að upp komist. Gættu þín bara og tungu þinn- ar. Ekki mun þetta ríða okkur að fullu.“ Hann hélt henni í járngreip sinni, þang- að til hann taldi, að hún væri orðin sænii- lega róleg. Þá sleppti hann. Hann leit í kringum sig í herberginu. „Finndu handa mér einhver blaðaslitur. Ekki dugir að skilja við gólfið svona útlít- andi. Hann kraup á kné og tróð blöðunum undir líkið allt í kring. Síðan mælti hann: „Opnuðu dyrnar. Gættu að hvort nokkur

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.