Nýjar kvöldvökur - 01.01.1955, Síða 27

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1955, Síða 27
N.Kv. S JÓNARV OTTUR 19 nágrenninu. Hann hafði heyrt, að þær væru margar í borginni. Hann sá kaupmann sópa stéttina úti fyrir búðardyrum sínum. Hann herti upp hugann og gekk til hans. „Getið þér sagt mér hvar lögreglustöðin er?“ spurði hann. „Hér er engin upplýsingaþjónusta fyrir pattorma eins og þig,“ svaraði hinn. „Held- urðu að eg sé einhverskonar bæjarskrá? Vertu ekki fyrir. Sérðu ekki að eg er í önnum?“ Buddy slangraði aftur út á götuna og hélt för sinni áfram. Kaupmaðurinn hafði raun- ar komið honum til hjálpar, án þess að ætlast til þess. Buddy leitaði uppi útisíma og tók að blaða af ákafa í níðþykkri símaskrá, sem hékk þar í járnkeðju. Hann ákvað varð- stofu, sem hann áleit að væri næst og snar- aðist af stað. Þegar hann nálgaðist húsið fann hann til sama ótta og ávalt hafði kvalið hann, er hann kom nærri slíkum stofnunum. Þegar hann var lítill, sex-átta ára snáði, hafði hann verið sannfærður um að lögreglan væri jafnan óvinveitt öllum litlum drengj- um. Hann hikaði stundarkorn við útifyrir. En þegar hann sá lögregluköttinn koma að ut- an og læðast inn um dyrnar, þá var eins og honum ykist hugur, og hann ákvað að ganga inn. Maðurinn við afgreiðsluborðið þóttist vera í önnum og honum þóknaðist ekki að veita Buddy athygli fyrr en eftir drykk- langa stund. H.ann var að blaða í einhverj- um skjölum, eða hvað sem það nú var. Buddy stóð þegjandi álengdar, þorði ekki að hefja máls að fyrrabragði. Þegar maðurinn seint og um síðir leit ttpp úr skjölum sínum, mælti hann vingjarn- lega: „Jæja, hvað var það fyrir þig, drengur minn? Hefurðu týnt hjólinu þínu eða hvað?“ „Nei,“ sagði Buddy vandræðalega. „Eg veit dálítið, sem eg þarf að segja einhverj- um.“ Lögregluþjónninn innan við borðið brosti annars hugar og hélt áfram að rýna í blöð sín. „Og hvað skyldi það nú vera?“ Buddy horfði hræðslulega í kringum sig í herberginu og á dyrnar út á götuna eins og hann væri hræddur um að einhver óviðkom- andi kynni að heyra til sín. „Það er dálítið ægilegt ....,“ svaraði hann. „Það er um mann, sem var myrtur.“ Fyrsta sinni virtist nú lögregluþjónninn horfa á hann alsgáður og vakandi. „Veiztu um mann, sem var myrtur?“ „Já,“ svaraði Buddy með öndina í háls- inum. „í nótt. Og eg hélt að réttast væri að segja ykkur frá því.“ Hann velti því fyrir sér hvort þetta væri ekki nóg og hvort sér væri ekki óhætt að fara. Nei, auðvitað þurftu þeir að vita nöfn og húsnúmer. Ekki gátu þeir getið sér til um það. Lögregluþjónninn klóraði sér á hökunni. „Þú ert vonandi ekki með nein prakkara- strik í liugá, karlinn?“ spurði hann strang- ur á svipinn. En allar efasemdir virtust hverfa, er hann leit framan í Buddy. „Nei,“ sagði Buddy. „Gott, ágætt. Nú skal eg segja þér hvað þú skalt gera. Þetta er raunar ekki sú deild, sem fjallar um þessháttar mál, skilurðu. Sérðu langa ganginn þarna, fram hjá stóru klukkunni? Þú gengur inn þenna gang, að innstu dyrum. Þar finnur þú rétta manninn, og honum skaltu segja alla málavexti. En farðu nú ekki inn um næstu dyr, þá fer illa

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.