Nýjar kvöldvökur - 01.01.1955, Side 32

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1955, Side 32
24 SJÓNARVOTTUR N.Kv. ur!“ Hann reyndi að draga móður sína með sér inn fyrir hurðina. Móðir hans stóð kyrr í sömu sporum. Hún tók í handlegginn á honum og dró hann til sín. „Þarna er frúin. Nú skaltu hiðja hana af- sökunar. Segðu henni, að þú sjáir eftir öllu saman. Heyrir þú það?“ Konan hélt áfram niður stigann og til þeirra. Hún brosti vingjarnlega og móðir hans brosti afsakandi á móti. „Er nokkuð að?“ spurði hún. „Nei, það getur ekki heitið,“ svaraði móðirin með varúð. „Mér sýndist eg sjá lögregluna fara héð- an, þegar eg kom niður stigann.“ „Það er bara það, að Buddy hefur sagt dálítið, sem hann hefði ekki átt að segja.“ Móðirin hristi Buddy án þess að hafa augun af konunni. Hann skyldi hvað hún iitti við. Hann streittizt á móti og reyndi að fela sig bak við hana. „Hann er þó svo geðugur,“ sagði konan vingjarnlega. „Hvað hefur hann gert af r O U serr „Nei, það er öðru nær en að liann sé geð- ugur og þægur,“ sagði móðirin ströng á svipinn. „Hann finnur upp á öllum skratt- anum. Hann skrökvar að fólki alls konar þvætting. Hreinum uppspuna. Það er alveg spauglaust, þegar nágrannar manns og sam- býlisfólk á í hlut . . . .“ Iiún lauk ekki við setninguna. Konan lét augun hvíla á Buddy andartak. Það var bæði undrun og kuldi í augnaráði hennar. Undrunin varð að vissu. En augu hennar hvikuðu ekki. Henni datt ef til vill í hug ullarteppi, sem dottið hafði niður í blækyrru veðri. Henni datt ef til vill í hug vörubjóður með rakvélar, sem spurði grun- samlega margra spurninga. Það var eitthvað í svip hennar, sem vann sig eins og hnífsblað í gegnum Buddy. Það var eins og hann visnaði allur innvortis. Það var eins og sjálfur dauðinn stæði þarna og mændi á hann. Buddy hafði aldrei fyrr séð annað eins augnaráð. Það var kyrrt, ískalt og hættulegt. Og svo brosti hún allt í einu. Svipurinn breyttist ekki að vísu, en hún brosti með vörunum. „Strákar eru alltaf strákar,“ mælti hún undurblítt. Hún rétti út höndina og reyndi að strjúka á honum hárlubban, en hann hopaði skelfdur aftur á bak. Hún sneri sér við og fór. En hún fór upp stigann, ekki niður hann. Hún hafði þó verið á leið niður, en nú sneri hún við. „Æi, hvað ég er orðin gleymin,“ tautaði hún eins og við sjálfa sig. „Það var bréfið, sem eg ætlaði með í póstinn.“ Buddy vissi mætavel hvað hún ætlaðist fyrir. Hún ætlaði að segja honum frá því sem gerst hafði. Og það varð að gerast strax. Og nú var lokið þeirri yfirskinisvinsemd, sem móðir hans hafði sýnt, meðan nábýl- ingur hennar var viðstaddur. Hún dró Buddy harkalega með sér inn fyrir dyrnar og lokaði. En hann heyrði ekkert af því, sem hún sagði við hann. Það var aðeins ein einasta lrugsun, sem komst að í huga hans. „Nú hefur þú sagt henni það!“ kjökraði hann yfirkominn af hræðslu. „Nú vita þau það! Nú vita þau hver!“ En móðir hans misskildi hann. „Ó, svo þú ert þá farinn að skammast þín! Það hlaut að fara svo.“ Hún tók lykilinn undan kodda föður hans, lauk upp dyrunum, ýtti Buddy inn fyrir og læsti síðan hurðinni. „Eg hafði ætlað mér, að sleppa þér út seinnipartinn í dag, en nú skaltu fá að hír- ast inni það sem eftir er dagsins.“

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.