Nýjar kvöldvökur - 01.01.1955, Side 35

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1955, Side 35
N.Kv. PITCAIRN-EYJAN 27 Hópur hvítra manna kom upp úr háseta- klefanum. Tahitibúarnir komu einnig til hjálpar, og jafnvel fimm konur stóðu upp til þess að veita aðstoð sína. -— Tilbúnir við fokkuna og stórseglið, hrópaði Srnith. Fellið undirseglið. Það tókst auðveldlega að ná niður segl- inu, og blökkumennirnir og konurnar hlógu og skríktu við vinnuna. Smith sneri sér að manni, sem stóð við hlið hans: — Mc Coy! Hjálpaðu Martin að haga seglinu þannig, að það geti tekið á móti sem mestu vatni. Christian gekk fram og aftur í lyfting- unni og horfði stöðugt á himininn, sem var að sjá kolsvartur í norðrinu. -— Vertu tilbúinn við dragreipið, Smith, skipaði hann. Edward Young fyrsti stýri- maður stóð á þilfarinu. Hann var ungur maður, rauðbirkinn í andliti, og bauð af sér góðan þokka. Það eina, sem óprýddi hann var, að hann vantaði nokkrar tennur í efri góminn. Hann hafði farið af vakt fyr- ir tveimur stundum og var ennþá með stír- urnar í augunum. — Þetta lítur illa út, sagði hann. — Já, þetta er aðeins skúr, og ég læt miðseglið vera uppi. Það mundi verða mér sérstakt ánægjuefni, ef við gætum náð dá- litlu af regnvatni niður í vatnskassana. Eg get ekki trúað því, að Carteret hafi skjátl- azt í breiddarákvörðun sinni, en sjóúr hans var ekki áreiðanlegt, svo að vel getur verið að við séum nú 100 mílum austar en lengd- arákvörðun hans segir til. Young brosti dauflega. •—- Eg er farinn að efast um að Pitcairn-eyjan hans sé til. Hvenær'fannst hún? — 1767, þegar hann stjórnaði „Svöl- unni“ og var undir yfirstjórn Byrons. Hann sá eyna í um það bil 13 mílna fjarlægð og lýsir henni sem hárri klettaeyju, ekki meira en 5 mílur ummáls. Eyjan er skógivaxin, segir hann í endurminningum sínum um ferðina, og lækir sáust fossa niður klettana. — Fór hann í land? — Nei, það var afar mikill brimgarður við ströndina. Þeir mældu dýpið við vestur- ströndina, og um það bil mílu frá henni voru þeir á tuttugu faðma dýpi. Eyjan hlýt- ur að vera á þessum slóðum. En mun leita að henni þangað til eg finn hana. — Hann þagði andartak og bætti síðan við: — Er fólkið farið að kvarta? — Sumt af því er orðið ákaflega óþolin- rnótt. Christian varð þungur á brúnina. — Lát- um það bara kvarta, sagði hann, það skal samt verða að hlýðnast fyrirskipunum mín- um. Hryðjan var nú komin rétt að skipinu og byrgði útsýnið frá vestri til norðurs.Fyrsta vindhviðan brast á, og á sama augnabliki sló skipinu undan vindinum. Vindurinn fyllti seglin og þau þöndust út með miklum hávaða. Sólin var horfin, stormurinn þaut í reiðanum og regnið buldi á seglunum. — Hart á stjórnborða, skipaði Christian rólega manninum, sem var við stýrið. Stórar, loðnar hendur Quintal sneru stýr- ishjólinu í ákafa. í myrkrinu og stormgnýn- um heyrðust mjóar og veikar raddir kven- fólksins eins og fuglakliður. Um leið og skipið tók skriðinn áfram, rétti það sig nokkuð, og eftir 10 mínútur var stormsveip- urinn farinn fram hjá. Litlu síðar lá skip- ið aftur hreyfingarlaust og regnvatnið streymdi niður í stríðum straumum. Það buldi á skipinu og sjónum kringum það, svo að ekki heyrðist mannsins mál. Gnægð- ir vatns bárust skipverjum á þennan hátt, og hver tunnan af annarri var fyllt. Bæði karlmenn og konur afklæddu sig og fengu sér hressandi bað.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.