Nýjar kvöldvökur - 01.01.1955, Qupperneq 36

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1955, Qupperneq 36
28 PITCAIRN-EYJAN N. Kv. Eftir nokkra stund greiddust skýin sund- ur, og sólin, sem nú var komin upp fyrir sjóndeildarhringinn, þurrkaði óðara þilfar- ið. Dökkblá rönd sást í suðvestri. Skipinu var nú aftur snúið íil fyrri stefnu. Young hafði farið undir þiljur. Christian stóð út við öldustokkinn og starði út yfir hafið, þungbúinn og einbeittur á svip. Hann virtist vera miklu eldri en hann í raun og veru var. Þegar einhverjir voru viðstaddir, virtist hann rólegur. En þegar hann var einn, sóttu ósjálfrátt að honum ógeðfelldar minningar og kvíði fyrir framtíðinni. Ung hávaxin kona kom upp á þiljur, gekk léttum skrefum til hans og lagði hendina á öxl honum. Maimiti var ekki nema 18 ára gömul. Hún var af tignum ættum á Tahiti, en hafði yfirgefið land sitt og ættingja, til þess að leggja út í óvissuna með manninum sem hún elskaði, þessum ókunna Englend- ingi, sem hafði komið til eyjarinnar. Smá- ar hendur hennar, fagurskapaðir naktir fæt- urnir, litarhátturinn og andlitssvipurinn. Allt þetta gerði hana ólíka öllum öðrum konum á skipinu. Strax og hún stóð við hlið Christians mildaðist svipur hans. — Heldur þú að við finnum land í dag? spurði hún. — Eg vona það. Það getur varla verið langt undan. Maimiti svaraði ekki, en hallaði sér út á öldustokkinn við hlið Christians. Sjálf var hún óróleg og eftirvæntingarfull. Blóð feðra hennar, sem höfðu verið sjómenn mann fram af manni, streymdi í æðum hennar, og þessi könnunarferð um fjarlæg höf, sem þjóð hennar liafði aðeins heyrt helgisagnir um, var henni óþekkt ævintýri. Frammi á skipinu sátu tveir menn í al- varlegum samræðum á bak við skipsvind- una, þar sem þeir gátu talazt við, án þess að eftir þeim væri tekið. Mc Coy var Skoti, en bar írskt nafn. Hann var grannur og beinaber, með þykkt rauðleitt hár, hálslang- ur og með ákaflega áberandi barkakýli. Hinn maðurinn Isaac Martin var Ameríku- maður. Hann hafði af hendingu verið stadd- ur í London, þegar Bounty ætlaði að leggja af stað í þessa löngu ferð sína. Hann hafði kynnzt seglasaumaranum á skipinu í veit- ingakrá strokið af skipinu, sem hann var á, með það fyrir augum að komast til Suð- urhafsins. Hann var illúðlegur maður, um það bil þrítugur að aldri, hörkulegur í and- liti, sambrýndur, með ákaflega miklar og loðnar augnabrýr. — Við höfum beðið nógu lengi, sagði hann önugur, þú mátt trúa mér. Þessi bölv- uð eyja er í raun og veru alls ekki til, og ef svo væri, þá er hún að minnsta kosti ekki hérna nálægt. — Við erum að elta skuggana okkar. Það er alveg augljóst. — Jæja, en þá er líka kominn tími til þess að við segjum honum, að við séum orðnir leiðir á að flækjast svona íil og frá, eins og við höfum gert. Milly er á sama máli. Matt Quintal er líka með okkur. Brown mun gera það, sem við segjum hon- um, en Alex getur þú aldrei fengið á okkar mál. Christian er hans Guð. Eg tel það lík- legt, að John Williams sé búinn að fá sig fullsaddan af þessu ,eins og við hinir. Þetta sýnir að sex eru á móti þremur. Hvað hét hún eyjan, sem við komum iil á vesturleið? — Raratonga, kölluðu eyjarskeggjar hana. :— Ja-á. Það er sá rétti staður. Þar voru margar konur, sem eg er ekki húinn að gleyma. Það getur þú bölvað þér uppá. Ef við skyldum finna þessa skrambans Pitc- airneyju einhverntíman, þá er hún ekki ann- að en klappirnar einar. Og þar með verða ekki aðrar konur en þær, sem við höfum

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.