Nýjar kvöldvökur - 01.01.1955, Side 43

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1955, Side 43
N. Kv. PITCAIRN-EYJAN 35 fyrir ofan þau, vaxið þéttum gróðri upp að efstu tindum, en út við hafið var það bratt með berum klettabeltum. Þegar undan var skilið þungt brimhljóðið neðan frá strönd- inni, ríkti hér þögn, sem aldrei virtist hafa verið rofin áður. En allt í einu heyrðu þau fuglasöng. Söngurinn virtist vera í tölu- verðri fjarlægð, og sömu tónarnir voru allt- af endurteknir. Þau urðu undrandi þegar fuglinn skauzt allt í einu fram úr kjarrinu, lítill gráleitur hnoðri með hvítt hrjóst, og hélt áfram að syngja einmanalegan og íil- breytingalausan söng. Aðra landfugla sáu þau ekki, og engin lifandi vera varð á vegi þeirra, að undanskilinni lítilli mórauðri rottu og sandeðlu, sem hraðaði sér yfir vis- in blöðin og blíndi litlum skærum augum á þau út úr trjástofni. Allt í einu sagði Mai- miti: — Hér hefur verið fólk á undan okkur. -— Hérna? Hvaða vitleysa, Maimiti. — Eg veit það, —- svaraði hún alvarleg. — Það er langt síðan, en hérna, þar sem við göngurn, hefur einu sinni verið stígur. Christian brosti góðlátlega. — Það efast ég um, — sagði hann. — Það er af því að þú ert ekki af okkar kynþætti, — sagði stúlkan, — en Moetua mundi líka sjá það, og Minarii. Mér fannst þet’a þegar við vorum að klifra upp frá lendingarstaðnum, nú er eg viss um það. Fólk af mínum kynþætti hefur einhvern tíma húið hér. — Hvers vegna er það horfið? — Hver getur vitað það? Ef til vill er þetta ekki farsæll staður. — Ekki farsæll? Eyjan sem er svona frjósöm og falleg. — Fólkið gæti hafa flutt með sér ein- bverja gamla ógæfu. Venjulega er það ekki landið, sem á sökina, heldur þeir, sem setj- ast þar að. — Þetta getur ekki verið rétt, Maimiti, — sagði Christian eftir stundar þögn. — Hvað ætti að hafa rekið það hingað, svona langt frá öðrum byggðum löndum? — Það eru fleiri en þið hvítu mennirnir á stóru skipunum, sem fara langferðir, — svaraði hún. 1 þessu stóra hafi er ekkert land, sem fólk af mínum kynþætti hefur ekki fundið á undan ykkur. Jafnvel hér hef- ur það verið. — Ef til vill .... Heldur þú ekki að við verðum hamingjusöm hérna? spurði hann eftir stundarkorn. — Þú ert þó ekki óánægð yfir því að við skulum vera komin hingað? Nei .... svaraði hún dræmt. — En það er svo langt hingað. Eigum við aldrei að fara aftur til Tahiti? Christian hristi höfuðið. — Aldrei. Það sagði eg þér áður en við komum hingað, — bætti hann við blíðlega. Já, eg veit það. — Hún leit á hann og reyndi að brosa, en augu hennar voru full af tárum. — Þú mátt ekki láta þér leiðast það, þó að eg hugsi stundum um Tahiti. Leiðast það. Auðvitað mun mér ekki leið- ast það . . . .! En við munum verða ham- ingjusöm hérna, Maimiti. Eg er viss um það. Landið þekkjum við ekki ennþá, en strax og við höfum byggt okkur hús og eign- ast börn, eigum við hér heima. Þá verður þú alltaf hamingjusöm. Sambandið milli Christians og þessarar aðalbornu Tahitikonu hafði ekki skapazt ai tilviljun eða fljótræði. Þau höfðu orðið hrifin hvort af öðru skömmu eftir að Boun- ty kom fyrst til Tahiti, og tilfinningar þær, sem þau báru hvort til annars, urðu sterk- ari með hverjum degi, sem hann var þar. Meðan Christian dvaldi á eyjunni hafði hann lagt á sig mikið erfiði, til þess að læra mál eyjarskeggja, og með svo góðum á- rangri, að hann gat talað það næstum reip-

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.