Nýjar kvöldvökur - 01.01.1955, Síða 44

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1955, Síða 44
36 PITCAIRN-EYJAN rennandi. Þegar liann hafði komizt ofurlít- ið niður í málinu, komst hann að raun um, að Maimiti var alls ekki hverflynd og grunnfært náttúrubarn, eins og hann hafði álitið að hún væri, og þegar sú stund rann upp, að hún varð að velja milli hans og fjölskyldu sinnar og vina, — alls þess, sem fram að þessu hafði gefið lífinu gildi — skildi hann hve tilfinningar hennar voru einlægar. Það hafði ekki verið neitt hik frá hennar hálfu, þegar ákvörðunin var tekin. Augnabliki síðar sneri hún sér að hon- um. — Við skulum halda áfram, — sagði hún. Hún tók í hönd Christians, eins og til þess að leita verndar, og þau héldu áfram í hægðum sínum. Oðru hvoru skyggndust þau inn í skógarþykknið á báðar hendur og námu staðar og skoðuðu nokkur smá rjóður, þar sem þéttar laufkrónur trjánna höfðu skyggt á sólina og kyrkt nýgræðing- inn. Allt í einu nam Maimiti staðar og horfði upp í loftið. -—- Sjáðu, sagði hún. — Itato. Utan af hafinu komu tvær kríur fljúg- andi. — Þessa fugla elska eg mest af öllum, sagði Maimiti eftir augnabliks þögn. — Manstu eftir þeim á Tahiti? Alltaf eru þeir tveir og íveir saman. Christian kinkaði kolli. — Sjáðu hvað þær koma nálægt okkur, — sagði hann, — það er eins og þær þekki þig. — Auðvitað þekkja þær mig. Hef eg aldrei sagt þér það, að eg valdi mér itato fyrir hamingjufugl, þegar eg var lítil stúlka. Ó, þær eru svo fallegar! Þú skalt sanna til, eftir viku skal eg geta látið þær borða fisk úr hendi minni. Hún svipaðist um með vaxandi ánægju og áhuga og sagði Christian nöfn á ýmsum trjám, blómum og plöntum, sem hún þekkti. Litlu síðar kom í Ijós landsvæði, sem einna N. Kvl helzt líktist aldingarði, og nokkur gömul tré vörpuðu skugga yfir. Á hægri hönd þeirra óx risastórt banyantré, sem hafði skotið rótum yfir stórt svæði. Er þau höfðu gengið fram hjá því og farið yfir lágt hæð- ardrag, komu þau á litla hæð stuttan spöl frá þverhnýptu hamrábeltinu. Þetta var dá- samlegur staður þakinn blónium, og hress- andi gola bar blómaangan að vitum þeirra. Að haki, í norðurátt, handan við lítinn dal var fjall, sem byrgði útsýnið. Christian sneri sér að förunaut sínum. Maimiti, þetta er sá staður, sem eg vil að við veljum fyrir heimili okkar. Hún kinkaði kolli. Eg óskaði með sjálfri mér, að þú mundir segja þetta. Þetta er ein- mitt staðurinn. -— Húsin geta staðið meðfram nyrðra hæðardraginu, — bætti hann við, — og við megum vera viss um að finna vatn í ein- hverri af þessum litlu kvosum. Maimiti, sem fyrir litlu síðan hafði ver- ið hrygg í huga, var nú orðin glöð aftur. Þau settust niður á grasivaxinni hæð og fóru að tala um framtíðarfyrirætlanir sín- ar, hvar þau ætluðu að byggja sér hús, um stígina, sem þau ætluðu að leggja gegnum skóginn, aldingarðana, sem þau ætluðu að rækta og margt fleira. Að lokum risu þau á fætur, og eftir að þau höfðu gengið yfir stóra sléttu, komu þau að brauðaldintré, sem gnæfði hátt yfir skóginn umhverfis. Þetta var fyrsta brauðaldintréð, sem þau höfðu séð þarna. Annað minna tré óx upp við rætur þess. Með því að klifra upp á það, gat Maimiti komizt upp í neðstu grein- arnar á stóra trénu, sem voru hlaðnar á- vöxtum. Síðan kastaði hún ávöxtunum nið- ur til Christians. — Við höldum hátíð í dag, kallaði hún niður til hans. — Hefur þú eldfærin þí° með þér?

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.