Nýjar kvöldvökur - 01.01.1955, Qupperneq 48

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1955, Qupperneq 48
40 PITCAIRN-EYJAN N.Kv. — Þú mundir alltaf hafa tekið Brown og Alex Smith, sagði Young. — Já, eg mundi hafa tekið þá. Þeir eru báðir ágætir. — Þeir dá þig líkt og þú værir guð, bætti Young við og brosti, — einkum Smith. Þar átt þú tryggan vin. — Þetta þykir mér gott að heyra. Mér fellur mjög vel við Smith. Hvað veizt þú um hann? Hvaðan er hann? — Eg hef kynnzt honum betur þessa síð- ustu þrjá mánuði af ferðinni heldur en all- an tímann, sem við vorum á leiðinni frá Englandi. Hann var prammaformaður á Themsá, þegar Bligh réði menn á Bounty. Hann hefur sagt mér að hið rétta nafn sitt væri Adams og að hann hafi verið alinn upp á munaðarleysingjahæli nálægt Lon- don. — Adam, segir þú, það var skrítið. Hvers vegna breytti hann um nafn? — Hann vildi engar upplýsingar gefa um sjálfan sig, og eg vildi ekki ganga hart að honum. — Nei, auðvitað ekki. En hvað svo sem á daga hans kann að hafa drifið, er eg viss um, að hann hefur alltaf verið heiðarlegur. — Já, það þori eg að sverja, sagði Young ákveðið. — Hann er grófgerður og úmenntaður en þú rnátt treysta honum. Það er ekkert illt íil í honum. -—- Hvað viðvíkur skipinu verðum við að taka ákvörðun strax, sagði Christian eft- ir augnabliks þögn. — Þú hefur í huga að eyðileggja það? — Já. Ert þú samþykkur því? — Algerlega. — Það er ekki um annað að gera, vegna þess að eyjan er hafnlaus eins og þú sérð. En eg vil helzt að sú tillaga komi frá fólk- inu sjálfu. Það verður að sjá nauðsyn þess, ef það hefur ekki þegar séð liana. — En setjum nú svo, að örugg höfn finndist. — Jafnvel þó svo væri, vil eg ekki hafa skipið ofansjávar. Nei, við verðum að brjóta allar brýr að baki okkar. Eg býst ekki við að til sé eyðilegri ey í Kyrrahaf- inu, en þó er hún þekkt, þess vegna er hugs- anlegt að einhverjir komi hingað. Við get- um ekki leynt skipinu. En er við höfum los- að okkur við það, getum við gert bústaði okkar þannig, að þeir sjáist ekki frá sjón- um. Vegna þess hve erfitt er. að komast í land, eru elcki miklar líkur til þess að það verði reynt, þó að skip fari framhjá, minnsta kosti ekki ef eyjan er álitin óbyggð. Þegar við höfum eyðilagt skipið höfum við ekkert að óttast. — Má eg gera athugasemd? — Já, sannarlega, segðu mér álit þitt. -— Fólkið bíður með eftirvæntingu eft- ir að vita hvað þú hefur í hyggju, það veit eg. Væri ekki ráðlegt að þú segðir því nú í kvöld, hvaða álit þú hefur á eynni? Christian hugsaði sig um stutta stund. •—- Eg er sammála þér, sagði hann. Viltu biðja það að koma upp á þilfar. Hann gekk fram og aftur í lyftingunni meðan Young framkvæmdi skipun hans. Fólkið safnaðist saman í hálfhring kring- um mastrið og beið þess að Christian á- varpaði það. Konurnar stóðu fyrir aftan karlmennina, gægðust yfir axlir þeirra og skröfuðu saman. Það var óvenjuleg skips- höfn, sem þarna var saman komin og beið þess að heyra hvað foringi hennar segði. — Aður en við afráðum nokkuð, vildi eg vita vissu mína um, hvort þið eruð a- nægðir með, að þessi eyja verði framtíðar- heimili okkar. Þið voruð allir sammála mer um, að við skyldum leita að stað, og ef við fyndum hann, skyldum við setjast þar að. Félagar ykkar, sem voru með mér í landL

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.