Vetrarbrautin - 01.01.1907, Side 21

Vetrarbrautin - 01.01.1907, Side 21
lí Mása nefin við mannaþefinn, augun skima’ um áttir i allar gáttir, Sæng með seiðstafi undir silfurvati, náðir ijær tröllum — nótt er á fjöllum. Ganga þær með gleði að gullnum beði. Kongssonur blundar við blakið mundar. En tröllum burt bendir, er bjaitálfa sendir úr himinhöll sunna, inn um heliismunna. „Syngið, syngið svanir, • söngvi vanir! svo Hlini vakni, þó vina sakni.“ Skessurnar skunda til skemmti-funda. Senn hættir ’ann Hlini að harma vini. Sungu svanir, söngvi vanir; Hlini vaknar og vina saknar. Signý með gleði, fer að glæstum beði, slítur svefndróma við svanahljóma. Er ei vill hann neyta, fer sú yngri að þreyta við ástir heitar, en Hlini neitar. Hennar frjettir voru harmaljettir. Kær konungsmanni varð nú kotungs-svanni. „Syngið, syngið svanir, söngvi vanir! svo Hlini soíni og sorgir dofni.“ ' „Ei skaltu neita, en ástum heita, ef skessan rjeði rúnir á beði.“ Sungu svanir, söngvl vanir, Hlini soínar og sorgir dofna. „Og spyr þær, tröllín, sem trúa’ á fjöllin, er stara’ á æginn, hvað þær starfi’ á daginn.

x

Vetrarbrautin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vetrarbrautin
https://timarit.is/publication/522

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.