Vetrarbrautin - 01.01.1907, Síða 32

Vetrarbrautin - 01.01.1907, Síða 32
80 íjalla og þar vil jeg beinin bera, en ekki hjerna innan þessara þröngu og óþrifalegu veggja. Bræðurnir de Sonza þögðu. Síðustu yflrheyrslunni var lokið einmitt þennan morgun. Dómurinn var kveðinn upp yfir þeim, — það vissu þeir. Antonio hugsaði að eins um unnustu sína. — ?að rumdi í járnhurðinni, dyrnar opnuðust og nokkrir lögregluþjónar og hermenn gengu inn. Fyrir þeim gekk Juan Garizia Alvarez höfuðsmaður, sem Antonio hórfði á heiptaraugum, því maðurinn var svarinn fjandmaður hans og meðbiðill, sem lengi hafði litið Mercedes unnustu hans og auð hennar girndaraugum. Rjettarritarinn lýsti yflr því við fangana í naíni kon. ungs, að daginn eptii ætti að skjóta þá í fangelsisgarð' inum kl. 2 eptir hádegi. Fangarnir hiýddu á dóminn með hugprýði og ró og mæltu ekki orð af munni, enda vissu þeir, að svo eru lög sem hafa tog. lJeir voru iíka alvnnir orðnir við að heyra skothríðina í fangelsisgarðinum undaníarna daga. Rjet.tarþjónarnir og hermennirnir fóru svo aptur út úr fangelsinu, en Alvarez höfuðsmaður varð einn eptir. „Jeg hef enn þá skemtilegar frjettir að segja þjer, Antonio,“ sagði hann háðslega. „Þú getur óskað mjer til hamingju, því jeg er trúloíaður rjett nýlega henni Mercedes Pedro!“ „Fú ert lygari!“ hrópaði Antonio titrandi af reiði. „Nei, það er heilagur sannleikur! — Gerðu svo vel og líttu á þessi skjöl! Fau bera það með sjer að jeg segi satt.“ „Lygi og skjalafalser þjer samboðið, svikarinn þinn!“ „Fetta er dagsanna! Sjáðu til, svona eru stúlkurnar!

x

Vetrarbrautin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vetrarbrautin
https://timarit.is/publication/522

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.