Vetrarbrautin - 01.01.1907, Qupperneq 71
„Vetrarbrautin"
kemur út í heptum, 4—5 arkir að stærð, og kostar
hvert hepti 50 auia fyrir áskrifendur, ev borgist við
útkomu hvers h«ptis, og er hver áskrifandi bundinn
við að kaupa 4 hepti. í lausasölu kostar hvert hepti
60 aura.
Stærð ritsins fer nokkuð eptir ástæðum og undir-
tektum, en gera má ráð fyrir, að það komi út 2—4
sinnum á hverjum vetri. í vetur kemur það þó ekki
optar út en tvisvar sinnum.
,,Yetraibrautin“ ætlar sjer að flytja sögur, frum*
samdar og þýddar, kvæði, stuttar og alþýðlegar rit-
gerðir, þjóðsögur, sagnir, rúnaletur, skrítlur og íleira.
Allt kapp verður lagt á,'að hafa efnið sem fjölbreytii
legast. En þótt hvert hepti rúmi litið af hverju tagi,
getur það þó orðið álitlegt, safn þegar fleiri hepti koma
saman.
Á þessu fyrsta hepti geta menn að nokkru leyti
sjeð stefnu ritsins og starfsmið. Eigi var þó hægt að
hafa neina frumsamda isl. sögu í þessu hepti vegna þess,
að mjer hafði ekki dottið útgáfan i hug fyrri en nokkr-
uin dögum áður en hún var framkvæmd.
Útsölumenn fá 20°/0 í sölulaun, ef þeir selja 5—10
eintök, 25°/0 ef seld eru yflr 10 eintök. En standa verða
þeir ábyrgð á öllum þeim eintökum, er þeim eru send
og skila því sem ekki selst óskemmdu.
Eitlaun eru borguð fyrir góðar sögur, kvæði og
ritgerðir, er tímarit þetta álítur við sitt hæfl og ilytur.
Er mjer því þökk á því, að þeir sem eitthvað hafa af
því tagi, vildu senda mjer það og láti mig jafnframt