Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Page 21
framleiðenda hefði haldið eftir að-
alfund sinn í haust, þá hefði þar ver-
ið samþykkt að sölusambandið geng-
ist fyrir fjársöfnun í því skyni að
reisa veglegt minnismerki yfir
drukknaða sjómenn og mætti þar
með slá því föstu, að Sölusambandið
hefði tekið að sér forustu í þessu
máli sem bwri að þakka. Þá ræddi
hann uppkast sitt að stofnun og
framkvæmd Sjómannadags, sem
hann lagði fram á fyrsta fundinum
og sem öllum nefndarmönnum hafði
verið sent.
Fundurinn komst að þeirri niður-
stöðu að bezt væri að tilnefna þrjá
menn til að yfirfara uppkastið í næði
og gera á því þær breytingar sem
þyrfti, og leggja síðan sameiginlegt
álit þeirra fyrir annan fund í nefnd-
inni. Þetta var samþykkt. I þriggja
manna laganefndina voru kosnir:
Henry Hálfdánsson, Sigurjón A.
Olafsson og Þorsteinn Arnason.
Þremur dögum síðar, 28. nóvem-
ber 1937, kom undirbúningsnefndin
aftur saman, og skilaði þá laganefnd-
in sameiginlegu áliti um „Reglur
fyrir fulltrúaráð stéttarfélaga sjó-
manna um starfssvið Sjómannadags,
og útskýrði Sigurjón Á. Ólafsson
hverja grein fyrir sig. Urðu síðan
nokkrar umræður um reglumar og
voru gerðar á þeim smábreytingar
á orðalagi og var síðan öll reglugerð-
in samþykkt í einu hljóði.
Að lokum las Henry Hálfdánsson
upp uppkast að bréfi til hinna ein-
stöku stéttarfélaga sjómanna, um að
samþykkja Reglugerðina og tilnefna
fulltrúa í hið væntanlega Fulltrúa-
ráð Sjómannadagsins eins og regl-
umar mæla fyrir og var það sam-
þykkt.
Nefndin taldi ekki rétt að taka
ákvörðun um ákveðinn dag, sem val-
inn yrði sem Sjómannadagur, taldi
það hlutskipti hins fyrsta Fulltrúa-
ráðs. En á fundum nefndarinnar kom
fram tillaga um að velja sunnudag-
inn fyrstan í júnímánuði, og voru
færð sterk rök fyrir því, að sá dag-
ur myndi heppilegastur margra hluta
vegna.
Þar til samþykki viðkomandi fé-
lagsstjórna hefur fengist fyrir regl-
unum, og Fulltrúaráð Sjómanna-
dagsins hefur haldið sinn fyrsta fund
og kosið sér stjórn, áleit undirbún-
ingsnefndin það hlutverk sitt að taka
við tilkynningum hinna einstöku fé-
laga og boða til fyrsta fulltrúaráðs-
fundar.
Fyrsta bréfið barzt frá Skipstjóra
og stýrimannafélaginu Ægir 18. des.
svohljóðandi:
„Bréf yðar frá 1. þ. m., ásamt tveim-
ur fundargerðum um stofnun Sjó-
mannadags, ennfremur reglur fyrir
Fulltrúaráð stéttarfélaga Sjómanna um
starfsvið Sjómannadags, höfum vér
meðtekið og lagt fyrir félagsfund, sem
haldinn var 11. þ. m.
Fundurinn samþykkti umgetnar regl-
ur, eins og þær lágu fyrir.
Kosnir 2 menn í Fulltrúaráð Sjó-
mannadagsins og 1 til vara. Kosningu
hlutu:
Björn Ólafs, Mýrarhúsum
Jónas Jónasson, Oldugötu 8
Ingvar Agúst Bjarnason, Bergst.str.
52 til vara.
Þetta tilkynnist yður hér með.
Virðingarfyllst,
f.h. Skipstjóra- og stýrimannaf. Ægir
Alex Jóhannesson
(ritari).
Bréfin frá hinum félögunum komu
svo hvert á eftir öðru þar til öll höfðu
tilkynnt þátttöku.
Fyrsti Sjómannadagurinn
Að undangengnum þeim undir-
búningi sem að framan hefur verið
sagt frá og að fengnum tilkynning-
um hinna einstöku félaga um val
fulltrúa Sójmannadagsráð, var boð-
að til hins fyrsta fundar í Fulltrúa-
ráði Sjómannadagsins 27. febr. 1938,
sem var sunnudagur.
Fundurinn var haldinn í skrifstofu
Vélstjórafélags íslands að Ingólfs-
hvoli við Hafnarstræti. Tilkynnt
hafði verið um fulltrúa frá samtals
11 félögum sjómanna. Níu félögum
í Reykjavík og tveim í Hafnarfirði.
Alls 22 fulltrúum ásamt einum vara
fulltrúa frá hverju félagi, sem mátti
boða ef annar hvor aðalfulltrúinn
gat ekki mætt, og tóku þeir meira
og minna þátt í störfum ráðsins.
Þessir voru fyrstu fulltrúar í Sjó-
mannadagsráði Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar:
Frá Skipstjórafélaginu Ægir:
Björn Ólafs. Jónas Jónasson.
Til vara: Ingvar Ag. Bjarnason.
Frá Vélstjórafélagi íslands::
Hallgr. Jónsson. Þorsteinn Arnason.
Til vara: Júlíus Kr. Ólafsson.
Frá Skipstjóra og stýrim.fél. Reykjav.:
Guðm. H. Oddss. Hermann Sigurðss.
Til vara: Jóhannes Hjálmarsson.
Frá Sjómannafélagi Hafnarfjarðar:
Þórarinn Kr. Guðmundsson.
Jóngeir D. Eyrbekk.
Til vara: Jóhann Tómasson.
Frá Skipstjórafélaginu Aldan:
Geir Sigurðsson.
Þórarinn Guðmundsson.
Til vara: Guðbjartur Ólafsson.
Frá Skipstjórafélagi íslands:
Asgeir Jónasson.
Ingvar Kjaran.
Til vara: Ásgeir Sigurðsson.
Frá Sjómannafélagi Reykjavíkur:
Sveinn Sveinsson.
Lúther Grímsson.
Til vara: Sigurjón Á. Ólafsson.
Frá Skipstjórafél. Kári Hafnarfirði:
Einar Þorsteinsson.
Þorgrímur Sveinsson.
Til vara: Loftur Bjarnason.
Frá Matsveina og veitingaþjónafél. Isl.:
Janus Halldórsson.
Jens Kai Ólafsson.
Til vara: Friðrik G. Jóhannsson.
Frá Stýrimannafélagi Islands:
Grímur Gíslason.
Guðmundur Gíslason.
Til vara: Guðbjörn Bjarnason.
Frá Félagi ísl. loftskeytamanna:
Henry Hálfdánsson.
Halldór Jónsson.
Til vara: Friðrik Halldórsson.
Af þessum 30 fulltrúum og vara-
fulltrúum voru 20 starfandi sjó-
menn, sem voru oft langdvölum að
heiman og var ómögulegt að haga
svo fundi að allir gætu mætt. Á þess-
um fyrsta fundi Fulltrúaráðs Sjó-
manna dagsins voru mættir fulltrú-
ar frá 9 félögum.
Fundinn setti Henry Hálfdánsson,
og bauð fulltrúana velkomna til sam-
starfsins. Rakti Hann aðdragandann
að stofnun Sjómannadagssamtak-
anna og útskýrði þau verkefni sem
fyrir þessu fulltrúaráði lægi. Sem
væri fyrst, að koma sér saman um
ákveðinn árlegan Sjómannadag, þau
verkefni sem hann ætti að beita sér
fyrir og hvernig þeim verði bezt
komið í framkvæmd.
SJOMANnadagsblaðið 27