Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Side 49
Sundmenn á Sjómannadaginn á Grundarfirði.
Skrúðganga einn fyrsta Sjómannadaginn á Grundarfirði.
menn við Breiðafjörð og reist hefur
verið í Ólafsvík.
Öll hin árin, hefur ágóðinn verið
lagður í sparisjóðsbók og er ætlaður
til byggingar sundlaugar hér á
staðnum.
Bygging sundlaugar hefur frá
upphafi verið framámönnum Sjó-
mannadagsins mikið hugsjóna- og
hagsmunamál og á fjársöfnun af
því tilefni miklu og vaxandi fylgi
að fagna í byggðarlaginu.
Þeir, sem nú skipa sjómannadags-
ráð í Grundarfirði, eru Guðmund-
ur Runólfsson, Elís Gíslason, Elías
Finnbogason, Jón Elbergsson og Sig-
urður Lárusson.
Guðm. Runólfsson.
Sjómannadagurinn
á Eskifirði
Á Eskifirði hófst hátíðahald á
Sjómannadaginn árið 1940. Til árs-
ins 1950 stóðu óskipulögð samtök
sjómanna fyrir hátíðahöldum dags-
ins, en það ár mun fyrst hafa verið
kosið Sjómannadagsráð, og sá hátt-
ur á hafður jafnan síðan að fráfar-
andi ráð skipaði það næsta og til-
nefndi sérstaklega formanninn.
Forgöngumenn fyrsta Sjómanna-
dagsis voru nokkrir sjómenn á staðn-
um, bæði skipstjómarmenn og háset-
ar, en aðalhvatamenn þess að haf-
ist var handa munu hafa verið þeir
Friðrik Steinsson, skipstjóri, síðar
húsvörður Stýrimannaskólans, og
Eiríkur Bjarnason, kaupsýslumaður
og voru þeir báðir oft ræðumenn
dagsins á meðan þeir dvöldu á Eski-
firði. Meðal þeirra sem mikinn hlut
áttu jafnan að hátíðahöldunum
fyrstu árin, má nefna þessa sjómenn:
skipstjórana Þorlák Guðmundsson,
Jens P. V. Jensen, Böðvar Jónasson,
Sigurð Magnússon, Kristgeir Jónas-
son og vélstjórana Ara Hallgríms-
son og Gunnar Hallgrímsson. Vegna
þess að gjörðabók fyrstu 10 áranna
er glötuð verður ekki nánar sagt frá
þeim árum, en það sem hér hefur
verið sagt er samkvæmt munnlegum
upplýsingum sumra þeirra manna,
sem að ofan eru nefndir.
Eftir að sá háttur var upp tekinn
að skipa Sjómannadagsráð, hefur
það alltaf verið skipað 7 mönnum
og 2 til vara. Konur hafa stundum
átt sæti í ráðinu og þá jafnan tvær
hverju sinni. Sjómenn hafa ætíð ver-
ið í meirihluta í ráðinu, en fólk úr
öðrum stéttum hefur einnig komið
þar við sögu.
Hátíðahöld Sjómannadagsins hafa
jafnan verið tvíþætt, úti og inni-
skemmtanir dagsins hafa oftast far-
ið fram á íþróttavelli og á stundum
að einhverju leyti við höfnina. Ym-
iskonar íþróttir hafa verið til
skemmtunar, svo sem knattspyrna,
reiptog, boðhlaup o. fl. Ennfremur
keppni í beitingu og uppsetning fisk-
línu. Á síðari ánim hefur verið efnt
til kappróðra milli skipshafna, árið
Sýnt hvernig björgun fer fram með línustól.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 55