Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Page 46

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Page 46
hún skipuð eftirtöldum þremur mönnum: Birni Ólafs, Sigurjóni Á. Ólafssyni og Henry Háldanssyni. — Hún tók strax til óspilltra mála. Þegar skóflustungan að heimilinu var stungin með hátíðlegri viðhöfn að viðstöddum atvinnumálaráðherra, biskupi, borgarstjóra og öllu Sjó- mannadagsráði, hafði nefndin haldið 16 fundi með byggingarfræðingnum og öðrum sérfræðingum, og var öll- um undirbúningi lokið. Var þá að ósk Sjómannadagsráðs bætt tveimur mönnum í nefndina, þeim Þorvarði Björnssyni og Bjarna Bjarnasyni. Raunverulegar byggingarfram- kvæmdir hófust ekki fyrr en með vorinu 1953, og eins og áður segir, aðalbyggingamar uppsteyptar og komnar undir þak á Sjómannadaginn 1954, þegar hornsteinninn var lagð- uivEn þá voru þeir báðir látnir, Sig- urjón Á. Ólafsson og Björn Ólafs, sem verið höfðu formaður og gjald- keri fjársöfnunarnefndar dvalar- heimilisins frá byrjun. Sjómannadagsráð hafði einsett sér að opna dvalarheimilið til afnota á 20. Sjómannadaginn 1957. Þegar sá tími nálgaðist var auðsýnt, að hafa yrði sig allan við, ef þessu marki ætti að vera náð, þótt þegar væri farið að nota hluta af húsinu bæði til kvik- myndasýninga í aðalsal og til að leigja einstaklingum. Formanni Sjó mannadagsráðs var þá sérstaklega falið að stjórna þessum síðasta áfanga og fékk til þess óbundnar hendur, og með góðum skilningi allra aðilja, þá tókst að koma því í kring, að áætlunin stæðist, svo hægt var að minnast 20. Sjómannadagsins með sérstaklega hátíðlegum hætti, þar sem meiri hluti bæjarbúa fékk að skoða bygginguna og gleðjast með Sjómannadagsráði yfir unnum sigri. — Var heimilið á þessum degi opnað vistmönnum til afnota og stjórn þess falin á hendur Sigurjóni Einarssyni, skipstjóra, er ráðinn var fram- kvæmdastjóri frá þeim degi. Það sem síðan hefur verið gert í byggingarmálum dvalarheimilisins, er öllum kunnugt. Byggt hefur verið vandað samkomuhús undir rekstur Laugarássbíós, sem er vandaðasta kvikmyndahús landsins og sem væntanlega á eftir að verða flestum borgarbúum og þeim sem borgina gista kærkominn staður til heim- sóknar og rekstri Hrafnistu og vist- mönnum þar til verulegs stuðnings. Á 25. Sjómannadaginn verður svo ein síðasta álma dvalarheimilisins með viðeigandi tengiálmu tekin til afnóta fyrir nýja vistmenn, og hafa þá allar áætlanir Sjómannadagsráðs staðizt frá byrjun. Reyndar mun byggingarframkvæmdum aldrei ljúka á lóðinni meðan hægt verður að bæta við byggingum með góðu móti, því þörfin fyrir slíkt heimili mun aukast með hverju ári sem líð- ur. Fulltrúar Sjómannadagsráðs og allir þeir óteljandi aðiljar, sem að þessum byggingarmálum hafa stað- ið, hafa unnið mikið og þarft verk, sem vonandi verður þeim og hinum, sem þess njóta, til margVíslegrar ánægju. En þetta byggingarmál hefur ver- ið svo stórfellt og viðamikið, að í raun og veru hafa Sjómannadags- samtökin liðið fyrir það; þannig að önnur hugðarefni ungra og starf- andi sjómanna hafa orðið að sitja á hakanum, en fyrir það verður að bæta. Því má ekki gleyma, að Sjó- mannadagurinn er fyrst og fremst ætlaður til að vekja eftirtekt á lífi og starfi þeirra, sem á sjónum sigla og enn eru í fullu fjöri, en jafnframt hinum eldri sjómönnum til þakklæt- is og heiðurs, sem brýnt hafa báti sínum í naust. Þegar haft er í huganum það þýð- ingarmikla hlutverk í uppbyggingu landsins og þjóðinni til heilla, sem sjómannaséttinni er einni mest að þakka, en hinsvegar hvað lítið hún hefur fengið að njóta þess, þá verð- um við að viðurkenna, að við stönd- um í mikilli þakkarskuld við sjó- mennina okkar, — skuld, sem við eigum að greiða með margföldum rentum. En sjómennimir verða líka að þekkja sinn vitjunartíma, í 25 ára starfsemi Sjómannadagsins höfum við þurft á bak að sjá mörgum for- vígismönnum stéttarinnar, sem mikil eftirsjón er að og sem hafa unnið málefnum sjómanna svo mikið gagn að þeim verður aldrei fullþakkað það sem þeir hafa gert, nema þeir ungu sýni að þeir séu þeim í engu eftir- bátar. Ennþá eru mörg verkefni ó- leyst. Megi íslenzka þjóðin sem heild stefna að einu og sama marki, helgað háleitum hugsjónum. Tóku við heiðursverðlaunum 1961: Júlíus Kr. Ólafsson, sonardóttir Guðmundar Markússonar, kona Þorvaldar Magnússonar og sonur Þorbjörns Péturssonar. 52 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.