Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Page 69

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Page 69
Ferð fi! Tíminn líður. Atburðir, sem oss finnast nýliðnir, eru allt í einu mörg ár að baki og teknir að fölna í minn- ingunni. Svo er raunar um ferð þá, sem nú verður frá sagt að nokkru. Þótt fimm ár séu enginn óratími, hefir margt gleymzt, þegar við fátt er að styðjast, nema slitrótt dag- bókabrot, sem mest geyma nátt- úrufræðilegar athuganir. Ég vildi þó ekki skorast undan að segja lítil- lega frá þessu ferðalagi í Sjómanna- dagsblaðinu, þegar ritstjóri þess fór þess á leit við mig, þar sem í hlut átti gamall og góður samferðamaður frá Jan Mayen. En hvorttveggja er, margt er gleymt og rúmið í blaðinu takmarkað, svo að frásögnin verður víða snubbótt. Norður í íshaf. Það er miðvikudagskvöld 12. júní 1957. Mótorskipið Oddur er að leysa landfestar frá Torfunefsbryggjunni á Akureyri. Óvenjulega margt fólk er á hafnarbakkanum. Það er veifað, kvaðst og kallað, og er það óvana- legt, þegar áætlunarlaust flutninga- skip er að leggja frá landi. En hér var líka um einstæðan atburð að ræða. Oddur var að leggja af stað í leiðangur til Jan Mayen, sem fæst- ir gerðu sér í hugarlund hvar væri, nema einhversstaðar lengst norður í íshafi. Og mig grunar, að sumir hafi óttast, að þetta væri eitthvert feigð- arflan. En aðrir minntust þess, að nær fjórum tugum áður, eða 1918, hafði skip frá Akureyri farið í sams konar leiðangur og öllu reitt vel af. Tildrög þessa leiðangurs voru, að nokkrir Islendingar og Norðmenn höfðu hugsað sér, að hagnýta mætti öll þau kynstur af rekavið', sem liggja á fjörum Jan Mayen. Höfðu þeir gert með sér félag til að kosta könnunarleiðangur og sækja einn viðarfarm. Formaður fyrirtækisins var Sveinbjörn Jónsson, byggingar- meistari í Reykjavík. Ráðamenn leiðangursins sýndu mér þá vinsemd að bjóða mér með, svo að ég mætti skoða mig um á Jan Maye Greinarhöfundur með eftirtekjuna úr leið- angrinum, grasapressur og kassa með grjóti o. fl. — Ljósm. Gísli Ólafsson. eynni. Fæ ég seint fullþakkað það vinarbragð. Til ferðarinnar höfðu þeir félagar fengið m. s. Odd, og var skipseig- andinn Guðmundur H. Oddsson með í förinni. Skipstjóri var Símon Guð- jónsson, og var áhöfn skipsins 7 manns. Leiðangursmenn voru 8, og ég sá níundi. Fararstjóri var Agúst Jónsson, trésmíðameistari á Akur- eyri. Siglt var út Eyjafjörð í blíðviðri, og hélst það alla nóttina. Sólin hvarf aldrei sjónum til fulls, heldur synti hún í haffletinum úti við sjóndeild- arhringinn, en móska var í lofti. Ég var lengstum á ferli, því að mér varð ekki svefnsamt. Var óvanur sjóloft- inu og þótti þröngt um mig í háseta- klefanum á Oddi, þar sem við allir Akureyringarnir vorum saman- komnir. Ég varð því feginn, þegar komið var til Raufarhafnar kl. 7 að morgni. Þar lágum við til kl. 5 síð- degis. Var það hvortveggja, að skipa þurfti upp nokkru af vörum, og n 1957 eins að ganga frá ýmsu, en mest tafði þó, að einn leiðangursmaður féll í stiga og meiddist svo illilega í baki, að hann varð ekki ferðafær, og þurfti að ráða mann í hans stað. Segja mátti, að þetta hefði ekki spáð góðu, en sem betur fór, urðu ekki önnur óhöpp í ferð okkar. Þegar látið var í haf, var dálítill suðvestan kaldi. Hélst hann allan næsta sólarhring og greiddi heldur för okkar. Menn voru lítið á ferli, enda fátt að sjá. Einstöku fugl flögr- aði framhjá, og einn eða tvo reka- drumba sáum við á floti. Ekkert skip, aðeins úlfgrátt þokuloftið og grænlit- ur sjórinn. A föstudagskvöldið 14. júní snerist vindur til norðlægrar áttar, og gerið þá ylgju nokkra í sjó. Klukkan 6 á laugardagsmorguninn vöknuðum við félagar við að skipið nam snögglega staðar. Ég þaut upp berfættur og fáklæddur. Hvað var þetta? Rétt yfir skipinu gnæfði hár, kolsvartur höfði og að baki hans reis sólroðinn jökultindur hátt upp úr þoku og skýjum, er annars huldu mjög útsýn. Það var ekki um neitt að villast. Þetta hlaut að vera Beer- enberg, höfuðprýði Jan Mayen, og vissulega eitt með fegurstu fjöllum jarðarinnar. Og við vorum lagstir undir Eggeyju á Rekavík, sunnan á eynni. Stutt landlýsing. Jan Mayen er rúmlega 50 km löng en víðast mjó. Að flatarmáli er hún um 372 ferkm. Hún liggur frá norðaustri til suðvesturs, og er miklu mjóst um miðjuna. Norður- hluti eyjarinnar er eldfjallið Beer- enberg nær 2300 m hátt með jökul- hettu yfir sér, og falla skriðjöklar niður til allra hliða. Um miðja eyna að suðaustanverðu gengur inn mik- il vík og breið, Rekavík. Þar er und- irlendi nokkurt, en mestur hluti þess er grunnt lón, Suðurlón, en hátt sandrif fyrir framan. Andspænis Rekavík norðan í eyna gengur Maríu vík, þar er einnig lón, Norðurlón miklu dýpra en hitt. Skammt frá SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 75
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.