Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Side 70

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Side 70
Jökultoppurinn á Jan Mayen rís upp úr þokuhjúp. því er veðurrannsóknastöð Norð- manna. Milli víkanna er eyjan mjóst og lægst. Suðurhluti eyjarinnar er lægri en norðurhlutinn, hæstu hnjúkar um 700 m. Er hún eld- brunnin mjög, og víða þakin hraun- um. Víða sér í rústir eldfjalla í sjávarhömrunum með ströndinni. Nokkrar víkur skerast inn í norður- ströndina vestur frá Maríuvík, og verður sumra þeirra getið síðar. Annars minnir jarðmyndu og lands- lag eyjarinnar mjög á móbergssvæð- ið um miðbik Islands. Gróður er sáralítill annar en mosaþembur. En þær milda mjög svip eyjarinnar, sem annars væri harðla kuldalegur og hrjóstugur. En þegar við litum hana fyrst, þótti okkur sem víða væru grænar hlíðar þar sem gamburmosinn blasti við sýn. Fyrsta landgangan. Ekki létum við það lengi bíða að ganga í land. Við höfðum tekið með trillubát frá Akureyri, til þess að hafa í förum milli skips og lands. En víðast hvar er aðdjúpt, svo flutn- ingar á milli skips og lands gengu greiðlega. Annars er eyjan hafn- laus með öllu. Hinsvegar er venju- legast unnt að aka seglum eftir vindi með lendingu öðruhvoru megin á henni. Fyrsta lendingin undir Eggeyju gekk greiðlega, og áttum við eftir að fara þar um oftar. Síðar hefir mér orðið hugsað til þess, hvílíkt glæfraspil það var að fara þar um fjöruna. Eggey er geysihár höfði úr einskonar sandsteini, sennilega eld- fjallaösku, því að hún mun vera gíg- ur. Steinninn er svo mjúkur, að greiðlega má mylja hann með hönd- unum. Sífellt falla fyllur úr berg- stálinu, og myndu þeir, sem fyrir yrðu ekki frá tíðindum segja. Þegar í land kom, gengum við vestur sandana í Rekavík, en alls eru þeir um 15 km langir, og 1—2 km yfir þá þvera upp að fjalli, en mikill hluti þessa undirlendis er vatni þakinn, sem fyrr segir. Norðan við Eggey hefir breiður hraun- straumur fallið vestur eftir söndun- um. Hvarvetna skein á rekavið, en svo var hann dreifður þar, að ekki var talið tiltækilegt að hirða þar nokkra spýtu, því að langt var til sjávar og yfir hátt sandrif að fara. En brátt beindist athygli okkar að dálítilli þústu vestur á söndunum. Við flýttum okkur þangað. Þetta var einskonar kassi með allskonar beltum og spöngum. Við hann hékk langt nylonfæri með litlum akkeris- krók í enda, og auk þess einhvers- konar sívalningur, líkastur blýanti í lögun. Við horfðum á þennan grip, en vorum hálfhræddir við að snerta á honum, ef hann hefði einhverja vítisvél að geyma. En forvitnin varð gætninni yfirsterkari, og við veltum gripnum á hliðina. Hann var ekki ýkjaþungur, en á hliðinni, sem niður vissi, var áletrun á ensku, frönsku og einum þremur Asíumálum. Þótt- umst við kenna þar kínverskt og helzt eitthvert arabiskt letur. Sagt var í áletruninni, að kassinn geymdi veðurathugunartæki, og var finn- andinn beðinn að koma gripnum til skila án þess að opna hann. En hvert átti að skila honum? Um það var enginn stafur. En allt um það var kassinn hirtur og fluttur til Islands. Og kann ég ekki meira af honum að segja. Síðan hefi ég stundum hreyft því í gamni við kunningja mína, að sennilega hafi þetta verið rússneskt gervitungl eða eitthvað í þá áttina. Hver veit? Meðan við stóðum hjá kassanum og ræddum hvað gera skyldi við hann, sáum við mann koma ofan sandana til móts við okkur. Þetta var ungur maður, vasklegur að sjá. Hár féll á herðar honum og skegg niður á bringu. Hann heilsaði okkur glaðlega á hljómmikilli norsku, því að hér var kominn einn af starfs- mönnum norsku veðurstöðvarinnar. Var þeim kunnugt um, að við vær- um væntanlegir, og hafði hann geng- ið yfir eyna m. a. til að skyggnast um skipakomu. Héldum við brátt til skips, og fylgdi Sverrir, en svo hét Norðmaðurinn, okkur. Norsku búðir. Ekki leizt okkur að dvelja lengur í Rekavík, en Sverrir tjáði okkur að miklu meiri reki væri norðan á eynni, svo að akkerum var létt í skyndi. Siglt var vestur um eyna, því að yfirleitt var það álit okkar að meiri rekavon væri á suðureynni en norðureynni. En óneitanlega hefði verið skemmtilegra að sigla um- hverfis Beerenberg og sjá jökulfoss- ana í nánd, enda var nú allgott skyggni til fjallsins. Siglingin vestur og norður fyrir eyna var skemmtileg, því að veður var hið fegursta. Farið var svo nærri landi, sem óhætt þótti fyrir skerj- um, en þau eru þarna víða en flest merkt á kort. Sjónaukar voru sí- fellt á lofti, bæði til að skoða eyna, og þó einkum að skyggnast um reka- 76 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.