Sjómannadagsblaðið - 01.06.1969, Blaðsíða 18
var að sökkva í þriðja skipti, er
Kristinn henti sér útbyrðis og náði
honum. Var stýrimaðurinn þá með-
vitundarlaus.
Þetta afreksverk var unnið á
fiskimiðunum út af Breiðafirði í
slæmu sjóveðri og mjög köldum sjó.
Að ósk Kristins og Sjómannadags-
ráðs Stykkishólms var afreksverð-
launabikarinn, sem er gefinn af Fé-
lagi íslenzkra botnvörpuskipaeig-
enda, afhentur á hátíð sjómanna í
Stykkishólmi. (Sjá bls. 20).
Frá stakkasundinu.
Piltar úr sjóvinnunámskeiðinu, að störfum undir stjórn kennara
síns Harðar Þorsteinssonar.
AÐ LOKNUM hátíðahöldunum
við Hrafnistu var fjölbreytt dagskrá
í Nýju sundlaugunum á Laugardag.
4 keppendur voru í stakkasundi, þeir
Þcrsteinn Geirharðsson, Bjami
Ragnarsson, Guðni Eyjólfsson og
Smári Sæmundsson. Hlutskarpastur
varð Þorsteinn Geirharðsson og
hlaut hann Stakkasundsbikarinn. í
björgunarsundi voru 5 keppendur,
þeir Þorsteinn Geirharðsson, Atli
Michaelsen, Sigurbjörn Svavarsson,
Smári Sæmundsson og Guðni Eyj-
ólfsson, þar varð einnig hlutskarp-
astur Þorsteinn Geirharðsson og
hlaut hann einnig björgunarsunds-
bikarinn. Róðrarkeppni fór fram á
eins manns gúmmíbátum. Þátttak-
endur voru margir. Fyrstur varð
Benedikt Agústsson, annar Gísli Jó-
hannsson og þriðji Hrólfur Gunn-
arsson.
í reiptogi sigraði sveit Haraldar
Ágústssonar. Aðrir keppendur í reip-
togi voru Skipstjórasveit og sveit
Benedikts Ágústssonar. Þá fór fram
sýning í sjóvinnubrögðum. Piltar úr
Sjóvinnunámskeiði Æskulýðsráðs
sýndu undir stjórn Harðar Þorsteins-
sonar, einnig sýndi flokkur úr Björg-
unarsveit Ingólfs meðferð gúmmí-
björgunarbáta. Þá voru einnig flutt
skemmtiatriði.
Sjómannadagsblaðið og merki
dagsins voru seld víðsvegar um borg-
ina. Sjómannadagshóf var um kvöld-
ið að Hótel Sögu og dansleikir á veg-
um Sjómannadagsins í mörgum sam-
komuhúsum borgarinnar.
Sjómannadagurinn færir öllum
þátttakendum, svo og öllum þeim
sem stuðluðu að því að hann mætti
fara sem bezt fram, sínar beztu
þakkir.
4 SJOMANNADAGSBLAÐIÐ