Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Page 49
Nokkrir bátar á siglingu í Bolungarvík á Sjómannadaginn 1941.
Það var 1921 sem Falur
Jakobsson smíðaði 6 lesta bát er
var gefið nafnið Ölver. Nafnið var
þannig til komið að formanninn
Bjarna Fannberg dreymdi haug-
búann Ölvi er heygður er í Ölvis-
dölum á Stigahlíð og fannst hon-
um hann vitja nafnsins. Meðan
Bjarni Fannberg var formaður á
m/b Ölvi hafði hann það fyrir sið
að láta kasta í sjóinn fallegum fiski
er siglt var fyrir Ölvi. Þessi bátur
var mikil happafleyta á meðan
hann var í eigu Bjarna Eiríkssonar,
útgerðarmanns hér. Þessir voru
formenn á m/b Ölvi meðan Bjarni
Eiríksson átti hann, Bjarni Fann-
berg, Benidikt Jónsson, Guðjón
Jónsson, Jónas Halldórsson og
Jakob Þorláksson, sem var hlutar-
hæstur hér við djúp veturinn 1943.
Ölvisþáttur verður ekki rakinn
lengur hér en vísað á hann í Ein-
arssögu Guðfinnssonar.
Annar bolvískur bátur var
skírður Flosi, eftir þeim er
heygður er á Langadalsfjöllum.
M/b Flosi var 8 tonn og þótti hann
stórt og mikið skip á sinni tíð,
hann var líka happafleyta smíð-
aður af Fal Jakobssyni, fyrir
Bjarna Eiríksson, útgerðarmann.
Formenn á Flosa voru Bjarni
Fannberg, Benidikt Jónsson,
Kristján Jensson og Jakob Þor-
láksson. Flosi var seldur héðan
1948. Ekki er mér kunnugt um að
héðan hafi róið bátur sem borið
hefur nafnið Straumur hvað sem
því veldur. Það mun þó hafa
komið til tals með þeim sameign-
armönnum Bjarna Eiríkssyni og
Helga Einarssyni, formanni er
Falur smíðaði fyrir þá bát er bar
nafnið Bragi.
Eftir að þessir bátar er hér hafa
verið nefndir voru seldir hafa aðrir
komið í þeirra stað með sömu
nöfnum og hefur þeim farnast vel.
Fyrsta
diesil-
flutninga-
skipid
Þetta er fyrsta flutningaskipið, sem knúið var með Mercedes-Benz
diesilvél. PATENDR DAIMLER, er hóf siglingar með diselvél árið 1896,
en sem kunnugt er, þá sýndi höfundur mótorsins, þýski verkfræðingurinn
Rudolf Diesel (1859—1913) uppdrætti að hreyflinum árið 1893, undra-
tæki, sem notaði 34% olíuorkunnar, meðan gufuvélin nýtti aðeins 15%.
Að því er bækur herma, þá reyndu margir fyrir sér með smíði á diesel-
vél, eftir að rit um vélina kom út, þar á meðal Daimler, er gerði sína fyrstu
nothæfu vél árið 1896 (Mercedes-Benz), og að því er virðist á undan
uppfinningamanninum, sem lagði að sjálfsögðu til hugmyndina, er hann
gaf út 1893, eins og framan sagði.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 49