Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Side 67

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Side 67
jafnvel þótt hluti af nýsköpunar- togurunum, hefði verið smíðaður þar, eins og margir vita. Það sem gjörir þessa stöð áhugaverða fyrir íslendinga, er að þarna er verið að reisa hús, sem vantar tilfinnanlega á íslandi, það er að segja til skipaviðgerða. Stálskipasmíði á fiskiskipum fer nú fram innanhúss, víðast hvar, en aðstaða til inniviðgerða er ekki til í landinu, svo vitað sé, en það hefur gífurleg áhrif á afköst í viðgerðum, sér í lagi að vetrarlagi, og kann það að vera orsökin, að útgerðarmenn leita mikið með stærri viðgerðar- verkefni til útlanda. Það hefur lengi verið draumur þeirra er fást við skipasmíði og skipaviðgerðir á íslandi, að fram- kvæma þær innanhúss. í flestum löndum er það gert, og eru þó veður betri víðast hvar, en hér á landi. Nýja húsið í Aberdeen er stærsta, einlyfta húsið og nær það yfir tvö fyrri smíðasvæði. Húsið er 121 metri á lengd, 46 metrar á breidd og hæðin er 30 metrar. Þarna má smíða allt að 7000 lesta skip. Húsið er búið tveim 40 tonna krönum, er ganga á spori í loftinu og sjávarmegin eru vatnsheld skilrúm, er halda sjónum frá, milli þess sem skipum er rennt út, — eða inn í stöðina. L Smíði fyrsta skipsins í skál- anum, er þegar hafin, en það er annað skipið í fimm skipa rað- smíði á varðskipum fyrir bresku nýlenduna Hong Kong, eða öllu heldur breska varnarmálaráðu- neytið. Hefur komið í ljós að mjög margar vinnustundir sparast við að smíða inni, einkum í vondu veðri. Innivinna borgar sig í skipasmíði Hollendingar búa að sjálfsögðu við betra veðurfar en íslendingar. Samt kjósa þeir að smíða skip inni og að gera við þau undir þaki. Þessi mynd er frá Krimpen skipa- smíðastöðinni, Van der Giessen, sem nú getur smíðað stórskip inni, allt að 240 metra löng. Veggir þessarar „dómkirkju skipasmíð- anna“ eins og sumir nefna skálann eru 52 metra háir. Þarna inni er unnt að byggja skipshluta, sem vega allt að 250 lestir og koma síðan fyrir á réttum stað, þar sem skipið síðan flýtur upp, full- smíðað. Þarna hafa verið smíðuð tvö gámaskip um það bil 1500 tonn, og koma þau fullgerð út og geta haldið á hafið eftir tvo daga, frá því að þau sigla út um dyrnar. Þessi innivinna sparar í smíða- kostnaði um 30% á skip, sem er ekkert smáræði hjá stöð, sem þó er ekki að byrjað að smíða skip. Skipasmíðahúsið í Aberdeen. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 67

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.