Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 20

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 20
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 18 Starf Odds V. Gíslasonar - stofnun Öldunnar Þá er að geta séra Odds V. Gíslasonar í Grindavík sem svo mjög lét öryggis- mál sjómanna til sín taka. Hann var eldheitur baráttumaður fyrir margvís- legum málefnum, en störf hans að slysavörnum ber hæst. Hann ferðaðist verstöð úr verstöð til að vekja sjó- menn til meðvitundar um nauðsyn ör- yggisbúnaðar á skipum. Hann flutti ræður og gaf út tímaritið Sæbjörgu um þetta efni. Um hann segir Vilhjálmur Þ. Gíslason í „Sjómannasögu“ sinni: ,,Hann hugsaði ekki aðeins um stofn- un bjargráðanefndanna sem m.a. unnu að slysavörnum, en ráðgerði jafnframt stofnun sjómannafélaga til að tryggja líf og atvinnu sjómanna á allan hátt“... Hann gerði einnig ráð fyrir því að stofna sjómannaráð fyrir allt ísland.“ Séra Oddur naut stuðnings ýmissa málsmetandi manna, en hugmyndir hans urðu mun síðar að veruleika. Sjálfur fluttist hann til Vesturheims sama árið og stéttarsamtök sjómanna urðu til, samtök er nutu góðs af braut- ryðjandastarfi hans í þágu sjómanna- stéttarinnar. Odds er minnst sérstak- lega á öðrum stað hér í blaðinu að þessu sinni. Yfirmenn á þilskipum urðu þó fyrri til að stofna félagssamtök. 17. febrúar 1893 stofnuðu skipstjórar og stýri- menn félagið Ölduna. Stofnendur hennar voru 24, en fyrir þeim vakti að stofna samtök þar sem þeir gætu rætt sameiginleg áhuga- og hagsmunamál, auk þess að njóta sameiginlega félags- lífs í tómstundum sínum. Útgerðarmannafélagið við Faxaflóa Stofnun Öldunnar hefur væntanlega orðið forystumönnum háseta ábend- ing um nauðsyn samstöðu og sam- takamyndunar. En það sem knúði há- seta til stofnunar félagsskapar var stofnun Utgerðarmannafélagsins við Faxaflóa 30. september 1894 og regl- ur félagsins „fyrir fólksráðning o.fl. á þilskipum...“, sem staðfestar voru 7. október 1894 og skyldu vera bindandi fyrir alla hlutaðeigendur til næsta að- alfundar“. Utgerðarmenn höfðu lengi rætt um nauðsyn samtaka þilskipaútvegs- manna. Á Vestfjörðum höfðu þil- skipaeigendur gert samning til 5 ára sín á milli um ráðningakjör skipverja og birtist áskorun frá þeim til Sunn- lendinga í ísafold um að gera slíkt hið sama. Aðalforgöngumaður að stofnun félagsins haustið 1894 var Tryggvi Gunnarsson bankastjóri. Hann hafði þá nýverið haft forgöngu um að keypt voru 8 ný þilskip til landsins. Afli var fremur lítill árin 1894-96 og fiskverð lækkaði árið 1894. Það mun hafa átt sinn þátt í tilraunum útvegsmanna til að herða ráðningarskilyrði háseta. Tryggvi Gunnarsson segir um þil- skipaútgerðina í grein árið 1902: „Sem betur fer hafa mörg þeirra (þ.e. þilskipanna-innsk.) þegar sýnt að þau eru arðsöm eign, því að þess eru dæm- in að á aflahæstu skipin hefur gróðinn orðið svo mikill á þrem árum að meira hefur orðið afgangs en það sem þau kostuðu upphaflega, og þó hafa þau gengið til veiða lítið lengur en helm- ing af tímanum.“ Má ætla að haustið 1894 hafi út- gerðarmenn ætlað sér að koma yfir á sjómenn þeirri byrði sem slæmt ár- ferði hafði lagt á útgerðina og saka þá um heimskulega háar launakröfur. Grein Tryggva bendir aftur á móti til þess að þilskipaútgerðin hafi ekki ver- ið eins áhættusöm og útvegsmenn létu í veðri vaka við háseta þetta haust. í lesendabréfi um þilskipaútveginn frá þessum tíma segir: „Þeir (útgerð- armenn) vilja af alhug fá breytingu á hinum vitlausa kaupsgjaldsmáta en þora hins vegar ekki almennilega að kveða upp úr með það; óttast að það fæli háseta frá sér... Mér finnst að út- gerðarmenn ættu eftir fenginni reyn- slu að skoða hvað þeir þola að bjóða, þannig að skipin hafi sinn nauðsyn- lega hag, til viðhalds, vaxtagreiðslu o.s.frv. Fái þeir ekki háseta fyrir það verð, þá ber atvinnuvegurinn sig ekki, og þá er best að hætta honum... Væri líklegt að hásetar hugsuðu sig um áð- ur en þeir létu þar að reka að skipin hættu að ganga.“ Ber þetta bréf glöggt vitni um það hvernig reynt var að saka háseta um of háar launakröfur og telja þær stofna útgerðinni í voða, þegar mæta þurfti erfiðleikum er áttu rót sína að rekja til lélegs afla og lækkandi markaðsverðs. Og blaðið hélt áfram að réttlæta launaskerðingu útvegsmanna. Það birtir reglugerðina í næsta tbl. og seg- ir: „Fyrsti ávöxtur þessa félagskapar eru reglur þær um ráðning á þilskip... Virðist þó með reglum þessum alls eigi gengið nærri hagsmunum háseta og skipstjóra, heldur öll sanngirni sýnd gagnvart þeim.“ Sjómannafélagið Báran Einhliða samþykkt Útgerðarmannafé- lagsins um ráðningarskilyrði vakti kurr meðal háseta og fóru þeir þegar að huga að á hvern hátt mæta skyldi kjaraskerðingunni. Eigi leið nema einn og hálfur mánuður þar til hásetar höfðu fundið mótleik. Það var stofnun sjómannafélagsins Bárunnar mið- vikudaginn 14. nóvember 1894. Út- gerðarmannafélaginu bárust því skjót svör við reglugerðinni. Erfitt er að henda reiður á tildrögum og atburðarás við stofnun Bárunnar. Fundargerðir Bárunnar nr. 1 frá 1894- 1902 sem munu hafa verið í einni bók eru glataðar og því aðeins hægt að styðjast við óljós og lítil blaðaskrif samtímans og seinni tíma frásagnir stofnenda, sem oft eru ótraustar. Fjallkonan birtir frétt um stofnun sjómannasamtaka. Þar segir: „Sjó- menn sem reka atvinnu á þilskipum og eiga heima í Reykjavík hafa að sögn gert samtök sín á milli til að krefjast hærra kaupgjalds og annara vildari kosta af hálfu útgerðarmanna en þeir hafa áður haft. - Það mun þó vera hyggilegast fyrir þá að fara hóg- lega, þar sem það er kunnugt að þil- skipaútgerðin hefur naumast eða alls ekki svarað kostnaði sum síðustu árin, enda mun útgerðarmönnum innan- handar að fá næga háseta á þilskipin frá Færeyjum, sem verða ekki kaup- dýrari og munu vera fullt svo duglegir fiskimenn sem íslendingar.“ Frásögnin af stofnun félagsins og kaupkröfum þess varð þess valdandi að nýkjörinn formaður Bárunnar, Jón Jónsson, svarar í umboði félagsins með grein í Þjóðólfi viku síðar. Rit- stjórinn, Hannes Þorsteinsson, leyfir honum að birta reglur um kjör háseta er 80 hásetar höfðu samþykkt í nóv- ember á félagsfundi, svo menn gætu gert samanburð og sannreynt hvort hásetar færu fram á óhóflegar kaup- hækkanir. 1 formála bendir Jón á að hásetar fari ekki fram á kauphækkun
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.