Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Side 42
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
40
vil ég geta um að við höfum farið
meira og meira út í að kenna það sem
við nefnum viðhaldstækni, en það er
sú þekking sem þarf til þess að geta
haldið búnaði við kerfisbundið. Ræð-
um við þá bæði um tímastýrt viðhald
og ástandsstýrt viðhald.
Þessi mál eru mikið í brennidepli
enda telja menn sig hafa sýnt fram á
að hægt sé að spara heilmikið með því
að hafa vélbúnaðinn í slíku stýrðu
viðhaldi. Með þessu móti á að nást
hámarksnýting á vélbúnaði og frátafir
vegna bilana verða í lágmarki.
Erfitt kann að vera að benda á í
krónum og aurum hve mikið hér spar-
ast, en mjög háar tölur hafa verið
nefndar. Við þetta nám eru tölvur mik-
ið notaðar. Erum við nú komnir með
mjög fullkomna tölvustofu með ný-
tísku tölvum og í þeim er að finna
mismunandi forrit um stýrt viðhald.
Þau forrit sem notuð eru núna í
kennslunni eru: Grettir, Viðhalds-
vakinn og Ægir, en skólinn hefur þeg-
ið þau öll að gjöf.
Þá er það endurmenntun vélstjóra
eða símenntun þeirra, en vélstjóra-
starfið er þess eðlis að menn þurfa
alltaf að vera að halda sér við. Þróunin
er það mikil á ýmsum sviðum og sá
sem ekki gefur gaum að því getur átt á
hættu að fjárfesting hans í þekkingu
ónýtist eftir nokkurn tíma.
Því hefur Vélskóli íslands haldið
uppi endurmenntunarnámskeiðum og
voru allmörg haldin á sl. ári. Þau voru
í kælitækni, í stýrðu viðhaldi og í vél-
arrúmsstjórnun. Þá höfum við verið
með námskeið í tengslum við starf-
semi fyrirtækja, svo sem Landsvirkj-
unar. Fyrir þá stofnun höfum við þeg-
ar haldið allmörg námskeið í samvinnu
við Vélstjórafélag íslands og hafa þau
farið fram úti á vinnustöðunum.
Þó vildum við að krafturinn í endur-
menntunarnámskeiðunum væri enn
meiri. En vandinn hefur því miður
verið að fá menn til að koma á nám-
skeiðin. Við höfum auglýst þau, en
iðulega orðið að aflýsa þeim vegna
dræmrar þáttöku - því miður. En víst
hafa sum námskeiðanna verið vel sótt
og heppnast vel, og má vera að hér
ráði auglýsingar og kynning miklu.
Við höfum auglýst í blaði sem Vél-
stjórafélagið gefur út og heitir Vél-
stýring, en það berst öllum aðilum
Vélstjórafélags Islands og er því kjör-
inn fjölmiðill til þess að auglýsa í. í
þessu sambandi vil ég geta þess að
samband skólans og Vélstjórafélags
íslands er með miklum ágætum. A
Norðurlöndunum er mikið um það að
fyrirtæki sendi menn á námskeið sem
haldin eru í vélskólum og mætti sá
þáttur aukast hér hjá okkur.
Þörf er fyrir „smáskipabraut“
,,Hér hef ég nú stiklað á nokkrum
stærstu þáttunum í þróuninni fram til
dagsins í dag.En ekki hafa allar nýj-
ungar sem við höfum hug á enn orð-
ið að raunveruleika. Þær snerta ekki
allar vélstjórnarfræðsluna eingöngu
og vil ég nefna að þörf er á menntun
handa hásetum á skipunum okkar,
svokallaðri smáskipa- og háseja-
fræðslu. Þetta höfum við Guðjón Ár-
mann Eyjólfsson skólameistari
Stýrimannskólans oft rætt og höfum
sameiginlega skipulagt ,,smáskipa-
braut“ svokallaða. Þar eiga menn
eftir hálfsvetrar langt nám að geta
fengið 30 tonna skipstjórnarréttindi
og réttindi sem vélaverðir auk þekk-
ingar á öryggismálum. Það sem snýr
að Vélskólanum er fyrst og fremst
málmsmíði og málmsuða, vélstjórn
og rafmagnsfræði. Tímarnir hafa
breyst og ólíkt eldri sjómönnum,
sem snemma lærðu handtökin á
sjónum, er það svo að fjöldi ungra
manna nú kann ekki neitt af því sem
gera þarf í höndunum þegar hann
kemur um borð í skip. Ekki leikur
vafi á að „smáskipabraut" eins og sú
sem ég hef lýst hér yrði mikið fram-
faraspor og menn með þessa mennt-
un eru ekki aðeins liðtækir á dekki
heldur einnig í vél.
Að mínu mati er hér einnig um að
ræða ákjósanlega hásetafræðslu fyrir
kaupskip og ættu menn með þetta nám
að öðru jöfnu að hafa forgang í
mannaráðningum. Með því að bæta
einni önn við, sem færi fram í Fisk-
vinnsluskólanum, væri komin kjörin
hásetafræðsla fyrir stærri fiskiskip og
togara. Þetta nám yrði rekið í sam-
vinnu Vélskólans, Stýrimannskólans,
Fiskvinnsluskólans og Slysavarna-
skóla sjómanna. Allir hljóta að sjá
nauðsyn þess að bæta menntun þeirra
sem starfa við öflun sjávarfangs og
við flutning á varningi til sjós, enda
hefur tækninni í þessum geirum at-
vinnulífsins fleygt mjög fram á síð-
ustu árum. Samvinna fyrrnefndara
skóla er þegar í gangi á ýmsum svið-
um og er ekkert vandamál. Það eina
sem vantar er vilji stjórnvalda og at-
vinnulífs til að auka menntun í þess-
um mikilvæga geira atvinnulífsins.
Það er kominn tími til að staðið sé við
öll fögru fyrirheitin sem tengjast Sjó-
mannadeginum og verkin verði látin
tala. Það er löngu tímabært að hásetar
fái sína sérmenntun í þessu þjóðfélagi,
eins og aðrar starfsgreinar.
Framtíð
vélstjórnarmenntunarinnar
,,En hér erum við að ræða um Vél-
skóla íslands fyrst og fremst, og má
spyrja hver framtíð þessarar menntun-
ar verði? Ég tel að ekki leiki á tveim
tungum að þetta er verðmæt menntun
- bæði fyrir þjóðfélagið og einstak-
linginn. Það er góð fjárfesting fyrir
ungan mann í dag að fara út á þessa
braut, því þetta er menntun sem hefur
í sér fólgna mikla breidd. Sá sem orð-
inn er vélfræðingur er í senn vélvirki
og vélstjóri og honum ættu að standa
til boða störf bæði til sjós og lands.
Þótt einkum sé miðað á störf um borð
í skipunum þarf þjóðfélagið á þessari
menntun að halda við virkjanir,
varmaveitur, í smiðjum og alls konar
fyrirtækjum og þá einnig í sambandi
við katla, en til að reka gufukatla þarf
vélstjóraréttindi. Ég held líka að ekki
hafi mikið borið á atvinnuleysi í
greininni.
Að öðru leyti er erfitt að segja fyrir
um framtíðina. Skólinn mun þó vissu-
lega líkt og hann hefur gert frá byrjun
reyna að laga sig að öllum helstu
tækniframförum. Hér verður reynt að
taka þær nýjungar sem mestu máli
skipta inni í kennsluna eftir því sem
kostur er á. Best er að skóli sé að
minnsta kosti samstiga tækniþróun-
inni og helst þarf hann að vera dálítið
á undan sinni santíð. Til dæmis er
gaman að geta um það að þegar við
fengum þennan fullkomna vélarrúms-
hermi fórum við skref fram úr þeirri
tækni sem fyrir var í íslensku atvinnu-
lífi, en í herminum er fullkominn lit-
grafiskur búnaður til stjórnunar, sem
aðeins er notaður þar sem tæknivæð-
ing er á háu stigi. Slík tækni er þó að
sönnu fyrir hendi hjá Hitaveitu Reykja-