Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Side 78

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Side 78
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 76 Alda ríðuryfir miðju olíuskips á legunni íHvalfirði. íslandsstrendur og var verið að fara með þá út aftur. Við hrepptum aftaka- veður strax eftir að lagt var af stað frá Reykjavík. Þegar við vorum stödd skammt undan Vestmannaeyjum fékk skipið á sig brotsjó og sjór komst í vélarrúmið. Vélar skipsins stöðvuðust og töluverðar aðrar skemmdir urðu á því, m.a. gáfu sig festingar fyrir björg- unarbáta sem fóru í sjóinn. Ég var í fastasvefni þegar þetta gerðist og hrökk upp, en herbergisfélagi minn, sem var sænsk þerna á skipinu og hafði verið til sjós í um 30 ár, sagði mér að taka þessu bara rólega og fara að sofa aftur, skipið hefði fengið á sig smá brot. Fyrir borð En það voru því miður ekki allir jafn heppnir og ég. Einn Grikkjanna sem greinilega varð mjög skelfdur í öllum látunum og taldi að skipið hefði orðið fyrir árás, henti sér fyrir borð í björg- unarvesti sínu. Þrátt fyrir mikla leit tókst okkur ekki að finna hann aftur. Eftir að vélar skipsins höfðu verið gangsettar að nýju hélt Lyra áleiðis til Reykjavíkur. Áður en til hafnar kom var skipinu snúið við og haldið til Fleetwood í Englandi þar sem skipið var í viðgerð vegna skemmdanna í þr- jár vikur. Rósa, sem er fædd og uppalin í Reykjavík, stundaði verslunarstörf á fyrstu árum stríðsins. Þegar hún sá að auglýst var eftir þernum á farþega- skipið Lyru ákvað hún að slá til og sækja um og fékk síðan starfið, þá aðeins 23 ára gömul. Lyra, sem var norskt farþegaskip og sigldi áætlunar- ferðir á milli Bergen í Noregi og Reykjavíkur á árunum fyrir síðari heimsstyrjöldina, var vel þekkt meðal Islendinga. Þegar Noregur var síðan hernuminn af Þjóðverjum í apríl 1940 var skipið statt hér á landi og sneri ekki aftur til Noregs. Áhöfnin, sem var að stærst- um hluta norsk, gekk til liðs við bandamenn og útlagastjórn Norð- manna og var skipið notað í þeirra þágu meðan á hersetunni stóð í heima- landi þeirra. ,,Vissulega hlaut að setja kvíða að fjölskyldu minni þegar ég tók þessa ákvörðun. En þetta voru erfiðir tímar og fólk hafði lítið á milli handanna. Ef eitthvað bauðst var því tekið, þótt það gæti talist hættulegt starf,“ sagði Rósa. ,,Móðursystir mín vildi að mér yrði bannað að taka þessu starfi en óhug hafði sett að að henni eftir hið hörmulega slys þegar línuveiðarinn Þormóður fórst við Reykjanesið skömmu áður en ég réð mig á Lyru. Það voru yfirleitt 4 til 10 skip sem fóru saman í skipalest þegar farið var héðan til Englands og voru þau í fylgd lítilla, breskra herskipa sem kölluðust korvettur. Mörg þessara skipa sem voru með okkur í skipalestunum héð- an voru skip sem voru að koma frá Ameríku og höfðu viðdvöl hér á leið sinni til Englands.“ Munaði oft mjóu Þótt Lyra yrði aldrei fyrir óhöppum af völdum Þjóðverja þá munaði oft litlu að illa færi. „Eitt sinn þegar við vorum að koma frá Fleetwood og héldum norður með strönd Englands til áfangastaðar undan ströndum Skotlands - en þar safnaðist skipalestin saman áður en haldið var af stað yfir hafið - heyrðum við skyndi- lega sprengingu þegar tundurskeyti hælði danskt flutningaskip sem var að- eins nokkrum tugum metra fyrir aftan okkur. Skipið byrjaði þegar að sökkva en við urðum að halda ferð okkar áfram. Bresk korvetta sá um að bjarga áhöfn- inni sem hafði heppnina með sér að þessu sinni og komst öll lífs af. Laskað í land Það voru skýr fyrirmæli um að kaup- skipin máttu alls ekki hægja á sér eða stöðva ferðina til að bjarga skipbrots- mönnum úr sjónum, þar sem skipið gæti þá orðið auðvelt skotmark fyrir kafbátana. Sú varð einmitt raunin á þegar Goðafoss var að bjarga skip- brotsmönnum og varð þá fyrir árás og 24 íslendingar fórust. I síðustu skipa- lestarferð okkar yfir hafið í stríðinu sem var í byrjun maí 1945, varð olíu- skip fyrir tundurskeytaárás í miðjum Faxaflóa á leið frá Reykjavík en náði að komast aftur til hafnar á Islandi. Mér er líka minnisstæð ferð þegar við áttum að fara með fiskfarm til Fleetwood. Við vorum komin rétt suð- ur fyrir landið þegar skipun kom um að við yrðum að snúa við og sigla í vesturátt, þar sem vart hefði orðið mikilla kafbátaferða Þjóðverja. Við vorum komin langt vestur á Átlants- haf áleiðis til Bandaríkjanna þegar við fengum skipun um að snúa við að nýju til Englands. Ferðin tók því 12 daga og hún var ekki góð lyktin sem lagði að vitum okkar þegar lestarlúg- urnar voru opnaðar á áfangastað. En fiskinum var öllum landað þrátt fyrir það og einhverjir gátu gætt sér á hon- um þótt við hefðum ekki viljað vera í þeim hópi.“ Milli vonar og ótta Eins og gefur að skilja hefur þessi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.