Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 91

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 91
SJOMANNADAGSBLAÐIÐ 89 Loks var skipið dregiðfrá bryggju íReykjavík og inn að mynni Grafarvogs ogEllið- vogs. Þar lá það síðustu tvö ár sín hér við laitd. Teikning úir Speglinum. svo mikið hafði veiðst af tvo undan- farna vetur i herpinót. En síldin kom hins vegar ekki á þetta svæði oftar né annars staðar þar sem hún yrði veidd í herpinót eða önnur stórvirk veiðar- færi. Er skemmst frá því að segja að skip- inu var lagt við eystri hluta Ægis- garðsins, en sökum stærðarinnar tók það allt viðleguplássið þar. Lá það nú þarna í heilt ár án þess að það kæmi að nokkrum notum. Sjómenn voru frem- ur gramir yfir að skipið skyldi taka þetta verðmæta pláss og álitu betra að nýta viðlegukantinn fyrir skip, sem kæmu að meiri notum. Því heldur sem hvorki tryggingargjöld né hafnargjöld höfðu verið greidd vegna Hærings frá því er hann kom til hafnar, eða í um eitt og hálft ár. Kom í stað verksmiðju á Austurlandi I júlí 1950 tókust samningar um að Reykjavíkurbær og Síldarverksmiðjur ríkisins tækju Hæring á leigu og sendu hann til Seyðisfjarðar um miðj- an mánuðinn. Samningurinn gerði ráð fyrir að skipið sjálft yrði leigulaust, enda um reynslurekstur að ræða. Hins vegar áttu þessir aðilar að bera kostað við útbúnað skipsins fyrir brottför, rekstur á leigutímanum, vátryggingu og fleira. Ekki varð það úr að skipið leggði af stað á fyrirhuguðum tíma, þar sem ekki hafði verið samið um kaup og kjör áhafnarinnar og fiskvinnslufólks um borð. Samningar tókust viku síðar og hélt skipið þá áleiðis til Seyðis- fjarðar. Síldveiðin fyrir Norður- og Austurlandi brást þetta árið og var að- eins landað 4000 málum til vinnslu um borð í Hæring. Til viðmiðunar má geta þess að með vinnsluvélum skips- ins var unnt að vinna úr 6 til 10 þús- und málum á sólarhring. Skipinu var síðan siglt til Reykja- víkur þar sem það kom að góðum not- um við bræðslu á karfa næstu eitt til tvö árin. Karfaveiðar voru þá að hefj- ast við Nýfundnaland á nýsköpunar- togurunum. Sagt er að ástæðan fyrir því að nýsköpunartogararnir sóttu á miðin við Nýfundnaland hafi verið sú að Hæringur var til staðar í Reykja- víkurhöfn til að bræða aflann. En vegna þess hve það átti fyrir skipinu að liggja að vera bundið lengi í Reykjavíkurhöfn var senn tekið að ræða um að hér væri að strönd borið „draugaskip“ eitt mikið, sem erfitt yrði að losna við. Skip sem í upphafi var talið að mundi geta fært svo mik- inn auð í þjóðarbúið! Haft var við orð að skipið héldi hvorki vatni né vindi og að jafnvel hafi gætt sjávarfalla í lestum þess. Spaugsamir menn á þessum tíma gerðu óspart grín að skipinu og má finna í dagblöðum og tímaritum marg- víslegan kveðskap sem ortur var um Hæring. Dæmi um það er þessi vísa: ,, Vtð Ægisgarð liggur eitt skrýtið skip, skrautlegt en lekur þó eins og hrip. Allir þekkja þann gamla grip, Hæring, sem hrærist ekki, með síld - með enga síld á dekki. “ Eftir langa reiðileysisdvöl í Reykja- víkurhöfn fór svo að síðustu tvö ár sín hér við land lá Hæringur í mynni Ell- iðavogs og Grafarvogs. Hafði honum verið siglt með stefnið upp í moldar- bakka sem þar var. Á þessum stað stóð skipið þar til það var selt til Nor- egs í september 1954. Nýju eigendurnir í Noregi munu hafa verið ánægðir með skip sitt og fréttist að þeir töldu að það hefði full- komlega uppfyllt þær vonir sem þeir höfðu gert sér um það, þrátt fyrir ein- hverja byrjunarörðugleika. En ekki fögnuðu allir ytra með eig- endunum. Hjá íbúum í síldarbænum Álasundi reis áköf deila út af lyktinni sem barst frá bræðsluskipinu mikla og hótuðu þeir málsókn, ef ekki yrði úr bætt hið bráðasta. Og mál var hafið - en það dróst á langinn og urðu menn að búa við fnykinn í nokkur ár, eða uns skipið var enn selt og nú til Björg- vinjar. Þar var það endurbyggt og not- að til Kínasiglinga, en ekki vitum við í hvað tilgangi. Og lýkur hér að segja af Hæringi hinum mikla.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.