Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 93

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 93
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ var kominn mjög nærri hinu mikla fari. Þá var duflinu varpað útbyrðis og mældur staður skipsins. Reyndist það fulla mílu innan við landhelgislínuna - eins og hún var dregin í þann tíð, eða tæpar tvær mílur undan landi. Nú var léttbátnum skotið út, og í hann stigu fyrsti stýrimaður og tveir hásetar, en Jóhann Andrésson stóð við byssuna, albúinn þess að skjóta, ef skipstjóran- um á móðurskipinu kynni að detta í hug að leita undankomu eða varna stýrimanni uppgöngu. Stýrimaður hafði með sér aðra af tveimur skamm- byssum varðbátsins. Þegar léttbáturinn kom að hlið móð- urskipsins, fleygðu Rússarnir festi til bátverja, og ennfremur hleyptu þeir niður kaðalstiga, enda var mjög hátt upp á öldustokk skipsins. Stýrimaður réðst þegar til uppgöngu. Þá er upp kom, gat að líta fjölda manns á þilfar- inu, bæði konur og karla. Þetta var þreklegt og fremur myndarlegt fólk, búið þykkum og skjólgóðum varð- málsfötum. Stýrimaður fór rakleitt upp á stjórn- pall. Þar hitti hann skipstjórann, sem heilsaði vingjamlega og virtist mjög áhyggjufullur. Hann skildi ekki ensku og kvaddi til loftskeytamanninn. Það var ung stúlka. Hún skildi ensku og talaði hana sæmilega, en þó stirðlega. Stýrimaður tjáði henni, að skipið mætti ekki vera innan landhelgi nema í brýnni nauðsyn og þá ekki nema tak- markaðan tíma - og alls ekki með nótabát í eftirdragi. Stúlkan túlkaði fyrir skipstjóra, og síðan tuldraði hann langa romsu, sem stúlkan hlýddi á með athygli og túlkaði síðan á ensku. Hún kvað eitt af síldveiðaskipunum rússnesku hafa orðið fyrir vélbilun, og hefði móðurskipið dregið það í land- var, svo að það gæti legið fyrir akkeri, meðan gert væri við vélina. Stýrimað- ur kallaði til skipherrans á Faxaborg og skýrði honum frá málavöxtum. Væri hvorki verið að vinna að neta- bætingu né síldarsöltun á þiljum móð- urskipsins - og í nótabátnum væri engin nót. Skipherra úrskurðaði, að skipinu skyldi sleppt og fól stýri- manni að veita skipstjóranum áminn- ingu. Stýrimaður vék sér að þeim rússneska, sagði á ensku, að hann gæti farið frjáls ferða sinna og áminnti hann um að gæta þess í öllum atriðum að brjóta ekki landhelgislögin. Stúlk- an túlkaði, og skipstjórinn brást glað- ur við, þreif í hönd stýrimanns og hristi hana mjög broshýr. Síðan kvaddi stýrimaður og fór yfir í varð- bátinn. Nú var haldið inn með austanverðu Langanesi. Þar lá fyrir akkerum, stutt undan landi, lítið norskt gufuskip, sem stundaði síldveiðar. Bátur frá því hafði lent í vogi einum, og voru nokkrir skipverjar í fjöru. Skipherrann á Faxaborg lét skjóta út báti, og var róið með fyrsta stýrimann yfir að síld- veiðiskipinu. Stýrimaður fór upp og spurði skipstjóra, hverju það sætti, að hann hefði sent bát í land. Skipstjóri kvaðst hafa sent eftir vatni. Stýrimað- ur spurði, hvort hann hefði haft sam- band við yfirvöld í löglegri höfn og fengið stimpluð skipsskjölin. Jú, sá norski kvaðst hafa komið á Siglufjörð, læknir stigið á skipsfjöl og lögreglu- stjóri séð skipsskjölin og stimplað þau. Stýrimaður gekk úr skugga um, að skipstjóri sagði þetta satt, en spurði hann síðan, hvort honum væri það ekki kunnugt, að hann mætti lögum samkvæmt aðeins taka vatn og vistir í þremur íslenskum höfnum, Seyðis- firði, Akureyri og Siglufirði. Skip- stjóri kvaðst ekki geta neitað, að sér væri kunnugt um þetta ákvæði. „En það er langt til Seyðisfjarðar og ennþá lengra til Siglufjarðar,“ sagði hann. Fyrsti stýrimaður kvað vera enn lengra til Noregs. Hann vék sér síðan frá skipstjóranum og kallaðist á við Þórarin skipherra, sagði honum mála- vöxtu. „Við látum duga áminningu,“ mælti Þórarinn. Stýrimaður sneri sér síðan aftur að skipstjóranum norska, kvað hann mundu sleppa í þetta sinn með áminn- ingu um löghlýðni, og vonandi kæmi ekki til þess, að hann bryti af sér á ný, því að þá slyppi hann ekki við að skreppa spölkorn í fylgd með varð- skipinu. Norðmaðurinn var mjúkur á manninn, og þó að kveðjur stýrimanns væru stuttaralegar, tók sá norski mjög kurteislega undir. Varðbáturinn hélt lengra inn með landinu og lagðist við akkeri fram undan Skálum. Annar stýrimaður kom á vörð klukkan fjögur um nóttina. Klukkan langt gengin fimm kallaði íslenskur 91 Þórarinn Björnsson skipherra. síldveiðaskipstjóri í talstöðina og sagði fullt af rússneskum síldveiða- skipum innan landhelgislínunnar á miðjum Bakkafirði. Stýrimaður vakti skipherra, og hann skipaði svo fyrir, að öll skipshöfnin skyldi kvödd til starfa. Skipherra fór síðan á fætur í hasti og hafði tal af skipstjóranum ís- lenska. Hann kvað mörg íslensk og rússnesk skip að veiðum úti á firðin- um, sum innan landhelgi og önnur ut- an. Skipherra kvað varðbátinn mundu koma á vettvang eins skjótt og unnt væri og síldveiðaskipstjórinn sagði, að hann og fleiri mundu slá hring um Rússana á skipum sínum, fara í veg fyrir þá og sporna við því, að þeir slyppu. Akkerum var létt í skyndi og vélin síðan látin taka á því, sem hún átti til. Það var orðið bjart af degi, veður hlýtt og stillt og sjórinn sléttur. Úti á firðin- um var fjöldi skipa. Rússarnir reyndu að hraða sér að draga næturnar, og íslensku skipin voru á kreiki í kring- um þau rússnesku. Nótin flæktist saman hjá einum Rússanum, en annar kom aðvífandi, setti dráttartaug í nót- ina hjá félaga sínum og reyndi að draga hana í sundur með afli vélarinn- ar. Skipstjóri frá Siglufirði var þarna mjög nærri á skipi sínu, og tók hann mynd af þessari hjálparstarfsemi. Varðbáturinn nálgaðist óðum skipa- þvöguna, og þá er hann var kominn að henni, rýmdu íslensku skipin fyrir honum. Brátt kom hann þar að, sem eitt rússneska skipið var að draga inn nót sína. Það hét Zenil, og einkennis- stafir þess voru PC 11. Þegar Faxa- borgin var að koma að þessu skipi, mældu skipherra og fyrsti stýrimaður stað þess, og mældist það 1.3 sjómílur innan við landhelgislínuna. Rennt var
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.