Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Blaðsíða 94
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
92
fram með hlið skipsins, og annar
stýrimaður varðbátsins og einn háset-
inn stukku yfir í höfuðböndin á fram-
siglunni. Hafði annar stýrimaður
skammbyssu að vopni.
Faxaborgin hélt áfram á fullri ferð
og stefndi í veg fyrir annað skip þeirra
Rússanna. Það hét Tuman og var
merkt PC 8. Þetta skip hafði þegar náð
inn nótinni og stefndi nú á fullri ferð
til hafs. Jóhann Andrésson stóð við
fallbyssuna, og var skotið púðurskoti
á Tuman. En skipstjórinn lét sér ekki
segjast. Aftur var skotið púðri, en ár-
angurslaust. Þarna var svo margt af
skipum, að nokkur áhætta var að
skjóta kúluskoti á sökudólginn, en
skipherrann treysti vel skyttunni og
þótti hart að láta Rússann undan
draga. Hann skipaði því að skjóta
kúlu. Jóhann miðaði, og kúlan kom
niður fimm sex metrum fyrir framan
stefni Tumans og þeytti upp háum
vatnsstrók. Þetta var sannarlega vel
skotið. Og Rússinn nam þegar staðar.
Varðbátnum var rennt upp að hlið-
inni á Tuman, og því næst mælt, hvar
hann væri staddur. Mælingarnar
sýndu, að hann var eina sjómílu innan
við fiskveiðatakmörkin. Fyrsti stýri-
maður stökk því næst yfir í skipið,
ásamt tveimur hásetum. Var annar
þeirra Jóhann Andrésson, og var hann
vopnaður þeim eina riffli, sem til var í
vopnabirgðum þessa íslenska varð-
skips, en birgðirnar voru, auk riffils-
ins, tvær skammbyssur, og önnur
þeirra var nú í höndum annars stýri-
manns, en hin var hvergi finnanleg.
Skipstjórinn á Tuman var frekar
ungur maður. Hann kunni ekki ensku,
en fyrsti stýrimaður á varðskipinu
gerði honum skiljanlegt með blýants-
teikningum og bendingum, að hann
hefði brotið landhelgislögin. Þá krafð-
ist hann þess, einnig með táknum og
bendingum, að skipstjóri afhenti hon-
um skjöl skipsins. Skipstjóranum varð
mikið um, en þá er stýrimaður hafði
gert honum skiljanlegt, að annar rúss-
neskur skipstjóri væri undir sömu sök
seldur og vörður verið settur í skip
hans, var auðsætt, að honum hægðist
mjög mikið, og sótti hann skipsskjölin
í skyndi og afhenti þau. Stýrimaður
fór síðan yfir í varðbátinn og hafði
fyrsta stýrimann af Tuman með sér
sem gísl, en skildi eftir hásetana,
vopnaða rifflinum.
Enn var varðbáturinn knúinn áfram
eins hratt og unt var og stefnt að þriðja
rússneska veiðiskipinu. Þegar Faxa-
borgin skreið fram með hliðinni á því,
var skipshöfnin að Ijúka við að tæma
nótina. Þetta skip hét Wolna, og voru
einkennisbókstafirnir PC 4. Mælingar
sýndu, að skipið var einn þriðja úr
sjómílu innan við landhelgislínu. Fyr-
sti stýrimaður varðskipsins fór vopn-
laus yfir til Rússanna, þar eð skamm-
byssan, sem til átti að vera, hafði ekki
ennþá komið í leitirnar. Hann hitti
skipstjórann, geðþekkan og stillilegan
mann, og skýrði fyrir honum með
teikningum og handapati, að hann
væri sekur um landhelgisbrot, sam-
kvæmt mælingum yfirmanna
varðbátsins. Skipstjóri sótti sjókort,
sem var ærið blakkt og ógreinilegt, og
var auðsætt, að hann vildi gera stýri-
manni það skiljanlegt, að hann hefði
haldið landhelgislínuna þannig
dregna, að hann hefði talið sig utan
við landhelgina. Stýrimaður hristi
höfuðið og gaf í skyn á sínu táknmáli,
að hann vildi fá skipsskjölin í sínar
hendur. Skipstjórinn skildi hann, sótti
skjölin og lét þau af hendi.
Meðan þessu fór fram, hafði skip-
herrann á Faxaborg leyst þann vanda,
hverja skyldi skipa verði íslenskrar
réttvísi á veiðiskipinu Wolna, sem á
var sextán vaskra manna skipshöfn.
Annar stýrimaður og allir hásetarnir
voru þegar komnir á vörð, vopnaðir
þeim tveimur byssum, sem finnanleg-
ar voru í Faxaborginni. Eftir voru, auk
skipherra og fyrsta stýrimanns, vél-
stjórarnir tveir og matsveinninn. Skip-
herra sá ekki annað ráð vænna en
senda tvo af þessum mönnum á vörð í
Wolna - og það með öllu vopnlausa.
Hann orðaði við matsveininn, hvort
hann mundi fáanlegur til að yfirgefa
potta og pönnur og standa vörð fyrir
föðurlandið. Matsveinninn var að
ljúka við að búa til tvíréttaðan sunnu-
dagsmat, sem hann taldi hafa lánast
sérlega vel, og var fullur bjartsýni,
sjálfstrausts og fórnarlundar.
„Velkomið, skipherra,“ sagði hann,
,,að ég taki að mér að vagta þessa
rússnesku fugla.“
Þá sneri skipherra máli sínu til vél-
stjóranna, og annar vélstjóri kvaðst
fús til að taka á sig ábyrgðina með jafn
ágætum manni og matsveinninn væri.
„Það held ég,“ sagði hann. Manni
Garðar Pálsson 1. stýrimaður.
ætti að vera óhætt, vitandi fyrsta stýri-
mann reiðubúinn til að meðhöndla
fallstykkin, ef Rússinn kynni eitthvað
að fara að steyta sig!“
Þeir bjuggu sig síðan til brottfarar,
stigu yfir á þiljur hins rússneska veiði-
skips, alvarlegir á svip og auðsjáan-
lega sér fyllilega meðvitandi þess
trúnaðar, sem þeir urðu aðnjótandi, og
þeirrar ábyrgðar, er á þeim hvíldi, - en
fyrsti stýrimaður fór yfir í varðbátinn
og tók sem gísl fyrsta stýrimann af
Wolna.
Nú tilkynntu íslensk veiðiskip, að
rússneska skipið Burna, einkennt með
stöfunum PC 14, það hið sama og
hjálpað hefði Wolna við að draga
sundur nótina, stefndi til hafs og
hyggðist forða sér úr klóm íslenskrar
réttvísi. Vélin í Faxaborg var ennþá
einu sinni látin taka á öllu, sem hún
hafði til, og knúði hún skipið um
lygnan sjóinn með níu mílna hraða.
Þarna var enn margt skipa, og hefði
ekki verið alls kostar auðvelt að átta
sig á því, í fyrstu, hvar Burna færi, ef
ekki hefði siglt á eftir henni siglfirskt
veiðiskip og haft fána við hún. Það
kom síðar upp úr dúrnum, að rúss-
nesku skipin gátu siglt með fjórtán
mílna hraða, en skriðurinn á Burna
var ekki meiri en svo, að brátt tók
Faxaborgin að draga á hana, og áður
en langt leið, var gerlegt að senda
henni skotkveðjur. Var þá öll áhöfnin
á Faxaborginni snarlega önnum kafin.
Skipherra stóð við stjórn, fyrsti vél-
stjóri gætti vélarinnar, og fyrsti stýri-
maður stóð í stafni og hlóð og skaut.
Fyrst var skotið þremur púðurskotum,
en ekki varð séð, að Burna léti sig það
neinu varða. Nú var ekkert skip orðið