Eimreiðin - 01.04.1928, Síða 41
EIMREIÐIN
HLUTVERK KIRKJUNNAR
137
ríku, að halda fast við kennisetningar Aþanasíusar-játning-
arinnar.
Skilningur í trúarefnum er þroska-atriði. Þekking vor á
eðli guðs og mannsins, er langtum fullkomnari heldur en
bekking hinna lærðustu feðra innan grísku kirkjunnar. Síð-
ustu 150 árin hafa gert oss kleift að kynna oss, hvernig
hugur guðs starfar og hvernig hugur mannsins starfar, með
miklu fullkomnari hætti en áður var unt. Hví skyldi ég biðja
Wann, sem ekið hefur kerru með uxum fyrir, að gera við
bílinn minn, ef hann hefur aldrei séð bíl áður?
Það er alls ekkert á móti því að hafa trúarjátning. Vís-
’ndin eru stöðuglega að búa til trúarjátningar í þeirri merk-
‘n2u, að þau eru sífelt að birta síðustu niðurstöðurnar. Kirkj-
an verður að gera slíkt hið sama. En það er mjög varhuga-
yert að búa til óbreytanlega trúarjátning. Óbreytanleg trúar-
játning er contradictio in adjecto (mótsögn í sjálfri lýsingunni),
Wí með trúarjátning eigum vér við hugsanakerfi. Nú er hugs-
Un í sjálfu sér lifandi hlutur og í vexti. Óbreytanleg trúar-
iátning mundi því vera óbreytanlegur hlutur, sem er lifandi og
1 vexti, en það er mótsögn. Annaðhvort er trúarjátning óbreyt-
anieg, en þá er hún hætt að vera hugsun í öllum réttmætum
skilningi þess orðs, eða hún er hinsvegar hugsun, en þá get-
Ur hún ekki verið óbreytanleg.
Það er hvorki viturlegt né mögulegt að fá alla menn til
að hugsa eins. Og það er auðvitað ógerningur að ætla sér
fá tvær kynslóðir hvora eftir aðra til að hugsa eins. Setjið
Vður rétt sem snöggvast fyrir sjónir muninn á því mjög svo
flókna lífi, sem ég og þú lifum, og hinum einföldu lifnaðar-
^átturn postulanna. Hvaða grein gerðu þeir sér fyrir muninum
á auðvaldi og öreiga lýð? Auðvald var þá ekki til í strang-
asta skilningi þess orðs, því að þá höfðu peningar ekki tekið
aó skipa þann sess, er þeir gera nú á dögum. Enn fremur
Var þá engin sérstök verkalýðsstétt til í nútímaskilningi þess
0rös. Hverjar voru hugmyndir þeirra um pólitísk réttindi?
^u á dögum taka þessar hugmyndir svo skjótri framþróun,
a® þær gerbreyta skoðunum vorum á hverjum tíu árum. Þeir
höfðu enga hugmynd um viðureign vísinda og guðfræði. Þeim
Var meira að segja ókunnugt um heimspekilega framþróun