Eimreiðin - 01.07.1928, Blaðsíða 36
228
ÚTVARP OQ MENNING
eimreiðin
svo áhrifamiklar í útvarpi; þannig hrífa orð upplesarans eða
leikarans miklu dýpra en annars. Menn verða að gæta þess
vandlega, að það er ákaflega nauðsynlegt, að það sé alveg
hljótt og hreyfingarlaust í stofunni, sem hlustað er á útvarps-
list í, því lítil truflun getur eyðilagt mjög mikið.
Utvarpið er hin ódýrasta, áhrifamesta og hraðvirkasta að-
ferð til að útbreiða þekkingu og þroska, gleði og huggun til
allra manna. Það er hið alþýðlegasta tæki, gerir sér engan
manna mun, eyðir misskilningi og sundrung, og er ómetanleg*
meðal til að skapa varanlegan frið í heiminum og sameina
þjóðirnar í samvinnu og einlægni. I útvarpinu kynnist maður
öðrum þjóðum, menningu þeirra og máli og hugsunarhætti,
skáldskap og tónlist, sögu þeirra og sérkennum; hið fiar'
læga og ókpnna nálgast mann, og maður veitir því viðtöku
sem góðum vini og kunningja. Útvarpið eykur heimilislífi^
og flytur ómetanlega gleði til sjúklinga og gamalmenna, og
til margra, sem áður voru nærri lifandi grafnir. í rúminu geta
þeir nú lifað með í miðstöðvum menningarinnar og fylss|
með því, sem þar er að gerast. Enginn spítali og ekkert hæl>
má vera án útvarps. Það er bezti vinur hinna bágstöddu og
litar lífið sérstaklega fyrir þá, sem erfiðast eiga með að laga
sig eftir því, og þá sem lífið hefur leikið harðast, þá sem eru
einmana, vinalausir og Iífsleiðir; það eykur skilning á tilver-
unni og samúð með öðrum. í ókunnum löndum flytur Þa^
manni kærkomið boð frá ættjörðunni, og maður getur þannig
á hverjum degi haft samband við hana. Hinn afskekti sveita-
bóndi getur fylgst með lífinu í höfuðborginni; hann kynnist
rithöfundum og listamönnum, heyrir rödd þeirra og naál,
hann er með í þjóðhátíðum og stórviðburðum langt í burtu,
hann heyrir list heimsfrægra snillinga, sem hann annars #tti
engan kost á. Útvarpið vekur áhuga manna á efnum, sen}
þeir alls ekki tækju eftir, ef það stæði í blaði eða bók, a
efnum, sem leiða hug þeirra burt frá striti dagsins, vekja þa
og hvetja til nýrra hugsana og dáða; það eykur fróðleiksfys11
og löngun eftir að kynnast betur heiminum, sem þeir lifa ’>
það endurvekur í meðvitund þeirra ýmislegt, sem hefur son
þar frá bernskuárunum; nöfn, sem áður voru dauð í eyrnrn
þeirra, fá alt í einu líf og lit. Útvarpið eflir ást manna á þjó