Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1928, Side 60

Eimreiðin - 01.07.1928, Side 60
262 ÞJÓÐLVGAR OG ÞEGNSKVLDA eimreiðin sem eru að varpa logandi eldibröndum nýrra hugsjóna á kulnandi glæður vestrænnar menningar, kemst svo að orði á einum stað um þetta fyrirbæri vorra daga, sem kalla maetti múgsuppeldi: »Á meðan oss lærist ekki að meta séreðli og sjálfstæði einstaklingsins meira en alt annað, en beinum upp- eldisstarfinu að því að gera alla sem líkasta hver öðrum og hossum meðalmenskunni, þurfum vér ekki að búast við öðr- um árangri af uppeldinu en vaxandi villimensku. Gildi allrar þekkingar einstaklingsins og leikni verður að metast eftir því eingöngu, að hve miklu leyti honum tekst að láta frumraena guðdómsorku síns eigin eðlis taka þetla tvent í sína þjónustu. Ef engin slík orka er til, þá er alveg sama hve góða skóla- mentun maður hefur fengið. Hún verður gagnslaus og oft verri en versta menningarleysi. Því vísindalega þjálfaður skræl- ingi er ýkjulaust miklu hættulegri skepna en mentunarlaus villimaður. Og maðurinn verður aftur að skrælingja þegar sál hans og andi þroskast ekki að neinu leyti, en einmitt það er að verða æ óskeikulli staðreynd í uppeldi múgsins á vorum dögum«. Þannig farast þessum manni orð, en hann er vafalaust einn af mestu mannþekkjurum, sem nú eru uppi. Eins og háttað er skólafyrirkomulaginu í landinu, geta kennarar vorir litla rækt lagt við andlega þroskun nemenda sinna, hve fegnir sem þeir vildu. Þá var heimakenslan áður fyr betri. Enda er enginn vafi á því, að hún hafði kosti, sem núverandi kenslufyrirkomu- lag fer á mis við. Vér skulum taka til dæmis eina kenslu- grein, sem nú er kend í skólum. Það er mannkynssaga. Fátt ætti að geta eins þroskað séreðli manna og frumleik eins og mannkynssagan, ef hún væri kend á réttan hátt, ef það væri í raun og veru mannkynssaga, sem kend er. En svo er ekki nema að litlu leyti. Sökin kemur hér öllu meira niður á sagnaritunum sjálfum en kennurunum. Flestar kenslubækur í mannkynssögu rekja að eins rás viðburða, en alt of lítið er gert að því að lýsa hvötum þeirra einstaklinga, sem stjórnuðu rás viðburðanna. Rökkursögur ömmunnar á íslenzkum heim- ilum höfðu miklu meira þroskunargildi fyrir ungar sálir en megnið af því, sem í mannkynssögunni stendur, eins og hun hefur til skamms tíma verið kend í íslenzkum skólum. Eitt
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.