Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1928, Side 82

Eimreiðin - 01.07.1928, Side 82
274 WILLIAM SHAKESPEARE eimreiðW; Miltons. í þeim gætir víða hins mikla skilnings Shakespeares á sálarlífi manna, en það er afar sterkur þáttur í sorgarleik)- um, hans. A árunum 1595—1601 ritaði skáldið nær eingöngu sögu- og gleðileiki. Byrjendabragurinn er nú með öllu horfinn af ritum hans. Hann er eigi lengur undir áhrifum fyrirrennara sinna, en fer nú sínar eigin götur. Skilningurinn á mannlegum hvötum er dýpri en áður, hugarflugið enn meira, efnismeð- ferðin hiklaus. Hann hefur fundið sjálfan sig, og meðvitundin um hina ríku skáldgáfu fyllir hann eldmóði. í söguleikjunum sneri Shakespeare sér að fortíð Englands; efnið fann hann i gömlum árbókum. Leikrit þessi voru skráð fáum árum eftir að sjógarpar Englendinga sigruðu »Flotann ósigrandi« spán- verska (1588). Því er í þeim sigurhreimur og djúp ættjarðar- ást. Hin helztu þeirra eru: Richard II., Henry IV. og Henry V. Inn í hina sögulegu atburði vefur Shakespeare myndir úr knæpulífi sinnar aldar — myndir, sem tíðum eru ruddafengnar, en hlátursefni gott. í Henry IV. er ein af Shakespeares ódauðlegu persónum — gortarinn og ístrubelgurinn Falstaff, heimshyggjan holdi klædd. Þó gagnólíkir séu, eru hann og Hamlet taldir mestu afrek Shakespeares í persónugerð. Sýnir hinn fyrri afburða kímni skáldsins, en hinn síðari djúphygo hans. Snildarlegar eru einnig lýsingar konunganna, sem sögu- hetjurnar eru í leikjum þessum. En leikrit þessi hafa eigi aðeins bókmentalegt, heldur einnig sögulegt gildi. Einn merkur enskur rithöfundur kvað svo djarft að orði, »að Shakespeare hafi líklega gert meira til þess, að útbreiða þekkingu á sögu Englands, en allir sagnfræðingar til samans.* Ritun söguleik)- anna er einnig merkur þáttur í þroskaferli skáldsins. Hann gerðist nú túlkur sögu lands síns. Það var vandaverk. Hann mátti eigi víkja mjög frá sannleikanum, en varð þó að gæða frásögnina lífi og skáldlegu formi. Þetta var honum þu' nokkurskonar andleg eldraun; listgáfa hans var lögð í deigl' una, en hún kom út úr eldinum hreinni og máttugri, hæfari til starfs þess, sem enn beið skáldsins: ritun sorgarleikjanna miklu, en þar nær snild Shakespeares hámarki sínu. Júltus Cæsar, sem flestir telja ritaðan á þessu tímabili, er einmg, eins og nafnið bendir til, sögulegs efnis. Er það bert, a skáldið er enn að taka framförum, sérstaklega í efnismeðfer • Mikið kveður einnig að höfuðpersónunum: Cæsar, Brútusi og Antóníó. Portia er rómversk kvendygð persónugerð. Sam særismönnunum er vel lýst, í fáum skörpum dráttum. Kæ urnar í leik þessum eru fyrirmynd að mælsku. Segja m , að Júlíus Cæsar sé á takmörkum söguleikjatímabilsins og sorgarleikjanna; svipar til beggja. Það er ljóst, að með vaxan
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.