Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1928, Page 87

Eimreiðin - 01.07.1928, Page 87
EIMREIÐIN WILLIAM SHAKESPEARE 279 Henni er mjög um það hugað að hefja mann sinn til nýrrar tignar. Til þess að hvetja til ódæðisverksins neytir hún allrar viljaorku sinnar. En sá glæpur verður ofraun kveneðli hennar er fram í sækir; samvizkan bítur hana sáran, og hún missir vitið. Það er því auðsætt, að höfuðpersónur leiks þessa eru stórfeldar, skapgerð þeirra ofin af hinni mestu djúpskygni. En fleira er hér aðdáunarvert — mikill og háfleygur skáld- skapur. Hugur Macbeths dvaldi löngum í heimi draumsjóna; hann heyrði raddir og sá sýnir, sem heimsbörn heyra eigi að jafnaði eða sjá. Mörg eintöl hans eru myndauðug og kröftug. Rás viðburða og leikslok eru einnig hin snildarleg- ustu, enda er Macbeth áhrifamikill á leiksviði. Og loks ber þess að ,geta, að leikurinn er færður í hið prýðilegasta mál- skrúð. A síðustu árum þessa sorgarleikja-tímabils sneri Shakespeare sér á ný að viðfangsefnum úr sögu Rómverja og fór með þau af sömu snild og einkennir leikrit þau, sem nú hafa rædd verið. I Antony and Cleopatra sýnir hann, kvernig hinn mikli rómverski hershöfðingi bíður sálartjón og að lokum fjörtjón fyrir áhrif austurlenzks nautnalífs, en ímynd bess er hin fagra Cleopatra, »ormur Nílár*. Coriolanus er hvöss ádeila á múginn hviklynda, sem lýðskrumarar hafa að leiksoppi. Þó verður söguhetjunni Coriolanusi ofdramb sitt að Hlli; hann fyrirlítur lýðinn gersamlega. Allar eru sorgarleikja- hetjur Shakespeares göfgir menn að eðlisfari, en þó er sú veila í skapgerð sérhvers þeirra, er verður þeim að falli og fjörtjóni: Hamlet íhyglin, Othello afbrýðin, Lear hrósgirnin, Macbeth metorðagirnin, Coriolanusi drambið. Slík er saga beirra. Og er hún eigi harmsaga alls þorra jarðarbarna í umgerð skáldlegrar ímyndunar og djúpskygni? Er það eigi harmsaga vor manna, að brestir vorir og breyskleiki varna bví tíðum, að vér náum settu marki, verða oss að fótakefli ~~ og jafnvel að fjörtjóni? En harmleikir þessir eru meira eo stórfeldar myndir örlaga einstakra manna og skuggsjá mannlegs lífs í heild sinni. Orka og eldur endurreisnartíma- oilsins lifir í þeim; þeir eru gróður þeirrar frjósömu aldar °9 spegla líf hennar. Þeir eru mesta bókmenta-afrek hinnar glæsilegu Elizabetar-aldar. Má skipa þeim á bekk með memstu sorgarleikjum Forn-Grikkja. Á síðasta tímabili ritstarfa sinna (1609—11) skráði Shake- ^Peare þrjú dramatísk æfintýri: Cymbeline, Winter’s Tale og ^he Tempest. Þesskonar leikrit voru þá að ná lýðhylli. Eru Pau æði frábrugðin sorgarleikjunum, anda friði og sælu og *ara öll vel. Það er eins og skáldið sé nú sáttur við veröld- ma og ana menn. Leikrit þessi gerast í draumlöndum ímynd- unarinnar fremur en á jörðu hér. En óneitanlega eru þau
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.