Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1930, Blaðsíða 31

Eimreiðin - 01.07.1930, Blaðsíða 31
eimreiðin FLAKK 239 Sefa honum, en faðir minn lét þetta ekki hafa nein áhrif — hefir líklega verið vanur slíku — og gaf karlinum eins og áður. Annar karl var það, sem kom og bar sig hörmulega út af ástæðum sínum. Þó þótti honum taka út yfir alt, að nú var blessuð konan hans hætt að komast til kirkju af skóleysi, svo nærri mætti geta, hvernig færi fyrir henni og börnunum, begar hún hætti að heyra Guðs orð, og að fá blessanina hjá Prestinum. Faðir minn gaf karli sitt af hverju og þar á meðal tvö reykt sauðskinn. Eg var þá, eins og krökkum er títt, að vappa í kringum karlinn, er hann var að troða skinnunum í P°ka sinn úti á hlaði. Svo lengi sem hann hélt að faðir minn heyrði, var hann að lofa hann fyrir dánumensku og allar hugsanlegar dygðir, og sagði loks: »]a, nú held ég að konan ^omist til kirkjunnar*. Svo lítur hann í kringum sig, sér að faðir minn er genginn burt. Þá brosti karl út í annað munn- vikið svo neyðarlega lævíslega, og segir hálfhátt við sjálfan Sl9: »Eg held hún fái nú samt ekki nema annað*. Og mér fanst einhvernveginn þá, að hún mundi hvorugt eiga — eða þurfa — að fá. Sumir þessir karlar voru ærið heimtufrekir. Einn þess háttar Ur Rangárvallasýslu, var eitt sinn á flakki úti í Ölfusi, til þess að biðja að gefa sér, og varð vel ágengt. Á Hrauni vildi bóndinn gefa honum vænan harðfisk, en þá segir karl með Þótta nokkrum: »Ég tek ekki fisk fyrir utan Ölfusá*. Þá voru karlar, sem flökkuðu um sína og næstu sveitir, einungis til að fá sér að éta, helzt á hátíðum eða ef veizlur voru haldnar. Gátu sumir þeirra étið furðu mikið í einu, ef keir áttu þess kost, jafnvel heilan kropp af veturgamalli kind, eða sem því svaraði af öðrum mat, en þeir þoldu líka sult ^ögum saman. Rlæðnaður þessara manna var í meira lagi óásjálegur. Að °fanverðu voru þeir í vondri prjónapeysu eða vaðmálsúlpu- 9armi, og með lambs- eða hundsskinns-húfu á höfði, eins og Segir í gamalli vísu: Hundsskinns-húfu hausnum á hefur niðrá eyru grámórauður Qunnar frá Uarðhúsum í Leiru.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.