Eimreiðin - 01.07.1930, Side 65
EIMREIÐIN
NUNNAN
273
hans og verða sjálf algerlega frjáls og sjálfráð allra sinna
ferða.
Hún talaði með miklum alvöruþunga, og horfði stöðugt í
augu honum með svo einkennilegu látbragði, að hjarta hans
fók nú að slá hraðara, og hann virti hana hálfhikandi fyrir
sér. Hún varð æ fegurri í augum hans, er hún hélt áfram í
róm og með spyrjandi augnaráði: »Er nokkur sá karl-
uiaður til, að hann girnist ást konu, sem hvorki elskar hann
1 rnóti né hefur hlotið sönnun fyrir hugrekki hans? Fáið mér
sverð yðar og kastið teningunum. Þá fyrst getur komið til
wála að við sameinumst sem sannir elskendur!« Um leið
tuýsti hún fílabeinsteningunum, volgum úr barmi sínum, í hönd
hans, en töfraður og eins og í leiðslu fékk hann henni sverð
s‘ft og belti. Svo kastaði hann teningunum, og kom upp
falan ellefu.
Því næst greip Beatrix teningana, hristi þá ákaft í lófum
sínum, og um leið bað hún innilega og í hljóði heilaga Maríu
Suðsmóður um hjálp. Svo kastaði hún, og kom upp talan
fólf. Hún hafði því unnið.
*Eg færi yður líf yðar að gjöf«, sagði hún, hneigði sig
alvörugefin fyrir baróninum, kipti að sér skikkju sinni, brá
sverðinu undir hönd sér og hraðaði sér burt í áttina heim á
frið. En þegar hún var komin úr augsýn barónsins, sem stóð
eftir ráðþrota og orðlaus af undrun, var hún svo hyggin að
halda ekki lengra í sömu átt, en tók á sig stóran krók um-
hverfis rjóðrið, læddist síðan inn í það aftur með mikilli varúð
°9 faldi sig bak við beykitrén, í tæpra fimmtíu skrefa fjar-
lae2ð frá manninum, sem hún hafði Ieikið svo grátt, og var
beykiskógurinn svo þéttur þarna, að hin ráðkæna mær gat
falið sig, ef þörf krafði, svo ekki hefði verið unt að finna
uana. Hún lá grafkyr og bærði ekki á sér, en sólargeisli féll
a Qimstein, sem hún bar í festi um hálsinn. Baróninn kom
aó vísu auga á leiftrið frá steininum og starði á það um
s*und undrandi. En svo hélt hann, að það væri aðeins glitr-
andi daggardropi á laufblaði og gaf því ekki nánari gætur.
Loksins rankaði hann þó við sér og blés hátt og hvelt í
^iðihorn sitt. Þegar hann hafði kallað saman lið sitt, hljóp
ann á bak hesti sínum og hleypti á eftir flóttameynni og
18