Eimreiðin - 01.07.1930, Síða 78
•>286
EUGENE O’NEILL
EIMREIÐIN
aðdáunarupphrópanir frá kvenfólkinu. í stuttu máli: Þetta fólk
virðist alt vera í sjöunda himni. — Við nánari rannsókn reyn-
ist þó fögnuðurinn blandinn. Eg hef heyrt marga segja, að
þeir »hötuðu« þessar tedrykkjur. Þær eru í raun og veru
lítið annað en félagslegar grímusamkomur, þar sem hver
keppist við annan að setja upp sunnudags-andlit og forðast
það sem heitan eld að koma til dyranna eins og hann er
klæddur.
Auðvitað vill þetta brenna við samkvæmislíf hvar í veröld
sem er. Og hvað eru almennar kurteisireglur annað en bann-
lög, sem látin eru ganga um alla óvenjulega hegðun manna?
En hvaðan stafar allur þessi grímudanzleikur, allur þessi
blekkingavefur? Af ótta, vanmáttartilfinningu: gríman er vopn
til að verjast hinu ókunna og ægilega. Ekki þarf annað en
iíta á börnin: heima ærslasöm og óþekk, en ef þau koma a
bæi, dettur hvorki af þeim né drýpur; þá eru þau góðu börnin.
Samskonar fyrirbrigði eru menn, sem eru mestu fautar a
heimili, en hrókar alls fagnaðar út í frá. Vfirleitt er það auð-
sætt við nánari athugun, að grímuburður er miklu algengara
fyrirbrigði, en menn í fljótu bragði mundu hyggja. Eða hver
er sá, sem aldrei hefur brugðið fyrir sig grímu um sína daga?
í leiknum The Great God Brown tekur O’NeilI þennan
grímuburð manna til meðferðar. Og til þess að ná betri tök-
um á efninu, lætur hann leikendurna nota grímur í raun og
veru. Það er bragð kjarnsæisstefnunnar. Með grímuna eru
leikendurnir ekki allir þar sem þeir eru séðir, grímulausir
koma þeir til dyranna eins og þeir eru klæddir, með grímuna
tala þeir, grímulausir hugsa þeir venjulegast upphátt.
Leikurinn sýnir sögu stallbræðranna Browns og Dions.
Brown er maður, sem sýnist rata hið gullna meðalhóf þessa
lífs, hann kemur sér vel áfram í veröldinni og er yfir höfuð
fyrirmyndar amerískur borgari: The Great God Brown. Þrátt
•fyrir það, er hann ekki giftudrjúgur í skiftum sínum við kven-
þjóðina, þeim er vel við hann, og leyfa honum jafnvel að
kyssa sig eins og bróður, en ekkert meira. Hann er lærður
byggingameistari og kunnur fyrir nákvæmni í reikningum, en
hvar sem list skal til, þar þrýtur kunnáttu hans. Hann er
• ágætur á banka, ónýfur á dómkirkjur.