Eimreiðin - 01.07.1930, Side 85
eimreiðin
EUGENE O’NEILL
293
velli í baráttunni um Nínu, því hann heldur áfram að lifa
sem hetja í hug hennar. Þessi Gordon Nínu er manndómur-
inn persónugerður, blekking að vísu, en blekking, sem aldrei
verður trufluð af veruleikanum. Enginn dauðlegur maður getur
framar þokað honum úr sæti.
En instu þránni er ekki fullnægt með öðru en samlífi karls og
konu. Og hér kreppir skórinn að Nínu. Hún getur aldrei fyrir-
Qefið sjálfri sér, að hún lét ekki Gordon taka sig áður en hann
fór. Þá hefði hún nú gengið með barni hans. Heft kynhvötin
hamast í undirvitund hennar og brýst loks upp á yfirborðið í
Þássi við alt velsæmi. I vitund sinni afsakar hún gerðir sínar
nieð þessum hugsanaferli: Af ótta við alment velsæmi og af sjálfs-
elsku hélt ég mér í skefjum og gaf ekki Gordon það sem hans
var, nú ásakar hann mig fyrir ragmenskuna; eini vegurinn til
að bæta fyrir brotið er að gefa sjálfa sig í óeigingjörnum til-
9angi til þess að gera aðra hamingjusama, án þess að hugsa
sjálfa mig, eða taka nokkurt tillit til almenns velsæmis. —
^g hún gerist hjúkrunarkona á spítala fyrir særða hermenn
°9 fórnar þar sjálfri sér til að gera ræflunum glaða stund.
Eins og allir sjá er þetta engin heilbrigð lausn á málinu,
enda veitir það henni engan frið heldur eyðir kröftum hennar.
^ún er sjúk og ráðalaus, fegin að láta að vilja annara. Og
nu hefst annar þáttur leiksins.
Nýr biðill hefur komið fram á sjónarsviðið, Sam, vinur og
aðdáandi Gordons, en væskill andlega og Iíkamlega. Spítala-
l®knirinn Darrell, sem hefur séð aðfarir Nínu og vill gjarnan
Ejálpa henni, vill fyrir hvern mun fá hana til að taka Sam
að sér. Það sem hana vantar, segir hann, er maður, börn og
^ú til umsjár. — Hann fær Marsden, gamlan vin og aðdá-
anda Nínu, til að hjálpa sér. Og Nína fer að ráðum þeirra,
kótt hún elski ekki Sam. Alt sýnist ætla að ganga að óskum,
hún verður barnshafandi, og er á góðum vegi með að finna
9æfuna í móðurstöðunni — þegar örlögin slá hana á nýjan
leik. Móðir Sams segir henni, að vitfirring sé í ættinni og
Sam megi ekki eignast afkvæmi. Hún sárbænir hana um að
Viirgefa ekki Sam, því að þá mur.i hann einnig missa vitið,
^insvegar ætti hún bæði sjálfs sín vegna og hans að eignast
barn með einhverjum óviðkomandi, hraustum manni.