Eimreiðin - 01.07.1930, Qupperneq 96
304
RAUÐA DANZMÆRIN
eimreiðin
atvinnu. Esteve kapteinn, sem gerðist njósnari í Barcelona,
fékk 60 dali (um 270 ísl. krónur) og frítt far til Frakklands,
þar sem hann átti að starfa. Sydnet, sem ferðaðist með um-
ferðaleikurum frá Ameríku og þóttist vera leikfimikennari,
fékk um 450 krónur fyrir verk eitt, sem hann átti að vinna:
að sprengja í loft upp eina af stórbyggingum Parísar! Það
kom fyrir að njósnarar í Englandi fengju alt að 9000 krónum,
en það þótti ríflegt, og var ætlast til að slíkar upphæðir ent-
ust lengi. Mata Hari gat unnið sér margfalt meira inn með
danzi sínum en hún gat gert sér vonir um að fá fyrir njósnir.
Og hún átti fjölda aðdáenda, sem voru reiðubúnir að veita
henni öll þau þægindi, sem unt er að öðlast fyrir peninga.
En hún var sólgin í æfintýri, líf hennar var ein löng röð af
taugaæsandi atburðum. Hún fann fróun í því að gefa sig við
hættulegum brögðum, þegar hún var orðin þreytt og Ieið a
almennum skemtunum. Og hún var sólgin í völd, vildi drotna
yfir mönnum og þjáðist af óseðjandi metorðagirnd. En mest
réði úrslitum, að Mata Hari var orðin njósnari áður en hún
vissi sjálf, og þegar einu sinni er komið út á þá braut, er
ómögulegt að snúa aftur. Sá sem einu sinni hafði tekið að
sér starf í 3. deild (Abteilung III : þýzka njósnarliðinu) átti
jafnan harðan typtunarmeistara yfir höfði sér. Ef skýrslum
hans skeikaði, fækkaði eða bar ekki saman, mátti hann eiga
vísa von á refsingu.
Venjulegast var aðferðin sú að senda sökudólgnum ein-
hver skilaboð, en sjá jafnframt um að þau kæmust í hendur
óvinanna, til þess að koma upp um hann. Vér vitum að þessi
aðferð var notuð við vinkonu Mötu Hari, hina fögru Mar'
ussiu Destrelles, og við dr. Karl Graves, sem rak njósnar'
starf sitt í Port Arthur í rússnesk-japanska stríðinu, en var
síðar sendur til Skotlands, af því að yfirmenn hans voru ekki
ánægðir með hann. Þar komst upp um hann fyrir tilstuðlau
hans eigin yfirmanna, og var hann handtekinn í Skotlandi oð
hlaut harðan dóm. En þeim dómi var aldrei fullnægt, Þv>
enska lögreglan tók hann nú í sína þjónustu og notaði hann
til að njósna hjá fyrri atvinnuveitendunum! Bretum hefur oft
hepnast vel að nota njósnara frá öðrum þjóðum á þennan
hátt.