Eimreiðin - 01.07.1930, Qupperneq 97
EíMREIÐIN
RAUÐA DANZMÆRIN
305
Einn af æðstu mönnum þýzku njósnanna á Spáni, von Kroon,
hefur sagt, að Mata Hari hafi verið talin á að gerast njósnari
af því, að hún hafi verið óviðjafnanlega lagin á að kynnast
fiáttsettum opinberum embættismönnum og vinna traust þeirra.
Þjóðverjar höfðu meira en nóg af algengum njósnurum. En
aíburða-njósnarar eru fágætir. Lauslætisorð það, sem fór af
Mötu Hari, varð síður en svo til að draga úr áhrifum hennar
Eieðal þeirra, sem henni var helzt ætlað að vinna. Og iðn
hennar varð henni ágæt vörn gegn öllum grun, og starfi sínu
átti hún það að þakka, að hún stóð öllum betur að vígi.
Við réttarrannsóknina, sem haldin var í máli Mötu Hari,
skýrði hún dómurunum hreinskilnislega frá því, hvernig hún
hefði kynst herra von Jagow, yfirmanni lögreglunnar í Berlín.
»Hann kom og heimsótti mig í sönghöllinni, þar sem ég
lék«, sagði hún. »í Þýzkalandi hefur lögreglan vald til að
hanna búninga leikenda, ef búningarnir þykja ósiðlegir, og
einhver hafði gefið í skyn, að ég væri altof fáklædd á leik-
sviðinu. Svo að sjálfur yfir-lögreglustjórinn kom að skoða
búning minn«.
Enginn, sem nokkuð þekkir til þýzku lögreglunnar á blóma-
h’mum keisaradæmisins, lætur sér til hugar koma, að jafn-
virðulegur og háttsettur embættismaður og sjálfur yfir-lögreglu-
stiórinn í Berlín hafi farið að gera sér ferð til þess eins að
skoða búning danzmeyjar. Það var verk fjórða eða fimta að-
stoðarmanns hans, en ekki hans hágöfgi sjálfrar, nema að eitt-
hvað sérstakt lægi á bak við. Og svo mun hafa verið hér.
Möíu Hari hafði þegar verið starf ætlað. Og hún lét til leið-
ast. Að skömmum tíma liðnum var það á allra vitorði, að hún
°9 yfir-lögreglustjórinn voru orðin innilegir vinir — svo inni-
'e9ir vinir, að hann lét henni í té dýrindis íbúð í »Græna
húsinu* svonefnda, í grend við Wilhelmstrasse, eina aðalgöiu
öerlínar. »Græna húsið« er frægt í sögunni og er ein af
dánargjöfum Stiebers til þýzku lögreglunnar. Á dögum Bis-
roarks var það einskonar miðstöð fyrir stjórnmálaleg leyni-
krögð járnkanzlarans mikla, og margur hafði látið ánetjast
konum þar innan veggja, gegn vilja sínum. Kostnaðurinn við
rekstur hússins var greiddur úr sjóðum leynilögreglunnar, og
Wónarnir voru nálega undantekningarlaust lögreglumenn. Vel
20