Eimreiðin - 01.07.1941, Blaðsíða 36
260
SNORRI STURLUSON OG ÍSLENDINGA SAGA eimreihin
verið fædd áður en hann gekk að eiga Halldóru Tumadóltur.
— Það væri mikið efni til frásagnar, ef rekja skyldi lcvenna-
mál höfðingja á siðari hluta 12. aldar og fyrri hluta hinnai'
13., og skal eigi farið frekar út í þá sálma hér. En hverju sætii'
það, að Sturla kallar Snorra einn „fjöllyndan",1) en gerir enga
viðlíka athugasemd um neinn annan samtímamann hans? Um
kvennamál Snorra er það annars að segja, að engin heimild
gefur tilefni til þess að finna honum neitt til foráttu í þeim
efnum, eftir að hann var um þrítugt. Hjónahand hans og Her-
disar Bersadótlur hefur víst verið mjög ófarsælt, en ]ió áttu
þau tvö börn á fyrstu hjúskaparárum sínum. Brúðkaup þeirra
fór fram 1199, en um 1206 lluttist Snorri l'rá Borg' á Mýi'um.
sem var arfleil'ð konu hans, til Reykholts. Má ætla, að skiln-
aður hafi verið ger með þeim um þær mundir. Herdisar
er að minnsta kosti aldrei getið í Reykholti. En um aldur laun-
barna hans er það að segja, að Órækja er fæddur 1205 eða
þar um bil, því að hann er talinn átján vetra, er hann sótti
Þorvald Vatnsfirðing til sektar á alþingi 1223. En dætur sínar
tvær hinar laungetnu gifti hann árið 1224, og hafa þær þá báðar
verið á yngsta giftingaraldri.2) Að minnsta kosti er það vist
um mann annarrar þeirra, að hann var þá eigi nenia 15—1®
ára gamall, og er vart gerandi ráð fyrir, að kona hans hafi
verið stórum eldri. Snorra þótti um þær mundir mikið xindu'
því að efla sig með sem styrkustum mægðum og hefur þótt
það ófallið, að dætur hans sætu heima eftir að þær voru svo
úr grasi vaxnar, að þær gátu aflað honum tengdasona.
geri því ráð fyrir, að hvorug laundætra Snorra sé fædd mikið
fvrir 1208 og alls eigi síðar en 1210. Eftir það finnst eigi getið
um frillur né frillubörn Snorra. En árið 1224 gerði hann félað
við Hallveigu Ormsdóttur, og fór hún til bús með honum. ÞaU
áttu börn saman, en ekkert þeirra lifði. Snorri var fæddur ll^®
eða 1179, og virðist því marglæti um kvennamál eigi hafa verið
mikill ljóður á ráði hans eftir að hann var um þrítugt, ef nokk-
1) Orðið gctur eigi merkt annað en fjöllyndur uin kvennamál, á 1)C11"
stað, sem ]>að stendur.
2) Sagt er að Ingibjörg Sturludóttir I'órðarsonar hafi eigi verið nci"-1
14 ára, er hún var gcfin Halli Gizurarsyni 1253. Eigi getur Sturiunga
neina konu, er gefin hafi verið i hjónaband jafnung eða yngri.