Eimreiðin - 01.07.1941, Side 50
274
SNORRI STURLUSON OG ÍSLENDINGA SAGA eimreiðin
hafði meira lið en þeir Loftur og Björn samanlagt. Þó gerði
hann hvorki að ganga á milli þeirra né veita öðrum hvorum
þeirra lið. Þorvaldur Gizurarson kom og eigi austur yfir ár til
liðs við son sinn, þó að honum hafi hlotið að vera kunnugt.
að fundum þeirra Lofts mundi bera saman bráðlega. En eig1
er tóm til þess að rita um það efni að þessu sinni.
Eftir bardagann reið Loftur vestur til Borgarfjarðar til
fundar við Snorra. Snorri hét honum sínu liðsinni, „ef Sa’-
mundur eða nökkurir aðrir höfðingjar vildi veita honum •
En Sæmundur brást Lofti gersamlega og kom ekki einu sinni
til alþingis þetta ár, en Þorvaldur var þar fjölmennur og
mæltist þar einn við. Loftur hafði og eigi þorað að ríða til
þings, er Sæmundur kom þangað eigi. Hér virðist nú fengn1
full skýring á því, hvers vegna Snorri sat heima um alþing1
að þessu sinni. Hann hafði aldrei lofað að veita Lofti, ef engir
aðrir yrðu til þess að styðja mál hans. En Sturla Þórðarson
lætur sér eigi nægja þessa skýringu. Segir hann, að Snorri haft
allmjök verið snúinn á liðveizlu við Loft, áður en Sighvatur
bróðir hans heimsótti hann i Stafholti, en þar sat hann u®
þessar mundir. Sighvatur átti systurdóttur Þorvalds og hafö1
sent sonu sina tvo, Tuma og Sturlu, suður til alþingis til liðs
við hann. „Snorri var heldr ófrýnn, er Sighvatur kom í Staf'
holt. En þó samdist vel með þeim bræðrum ok skildu við þak
at lokit var liðveizlu Snorra við Loft. En er Sighvatur ko®
vestur i Dali, spurðu vinir hans, hversu farit hafði með þei111
bræðrum. En Sighvatur segir, at Snorri hefði öxi reidda 11111
öxl, svá hvassa, at hann ætlaði at hvatvetna mundi bíta, Þa
er þeir fundust; — síðan tók ek hein úr pússi mínum, ok reið
ek í eggina, svá at öxin var svá slæ, at hló á móti mér, áð1
við skildum.“ Hver var „heinin“ Sighvats? Það er enn í <laS
næstum því auðsætt, hvernig farið hefur með þeim bræðru®-
Sighvatur skildi við Sturlu son sinn í Borgarfirði, er Sturla val
á leið til alþingis. Hefur Sighvatur því komið til Snorra 11111
þingbyrjun, er þá bjuggust enn allir við, að því er íslendinga
saga hermir, að Sæmundur mundi veita Lofti á alþingi- En
er það spurðist í Stafholt, að Sæmundur hafði eigi riðið til
alþingis og Loftur enda eigi dirfzt að koma þangað, þá hef®
Snorri séð, að eigi tjáði að veita Lofti lið, og þá hefur öxu1